fbpx
Sunnudagur 05.janúar 2025
Pressan

Grunnskólakennari játar að hafa brotið 18 sinnum gegn barni – Braut gegn barninu með eiginmanni sínum

Máni Snær Þorláksson
Sunnudaginn 26. desember 2021 22:30

Julie Morris

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Julie Morris, grunnskólakennari frá Wigan á Bretlandi, játaði sök sína í alls 18 brotum gegn barni fyrir dómi í vikunni. Julie, sem er 44 ára gömul, játaði meðal annars að hafa níu sinnum hvatt barn undir 13 ára aldri til að taka þátt í kynferðislegum athöfnum. Þá játaði hún einnig tvær nauðganir. Daily Star fjallaði um málið.

Julie var hátt sett í St George’s Central CE grunnskólanum en þar var hún staðgengill skólastjóra í fjarveru hans. Talið er að brot hennar tengist ekki stöðu hennar í skólanum á neinn hátt. Hún braut gegn barninu með eiginmanni sínum en þau eru sögð hafa framið fyrsta brotið árið 2018.

Saksóknarar sögðu fyrir dómi að brotin hafi átt sér stað undanfarin þrjú ár og að hjónin hafi beitt barnið kynferðislegu ofbeldi og tekið það upp. Myndband af ofbeldinu var sýnt fyrir dómi en í því mátti heyra í Julie flissa á meðan ofbeldið átti sér stað.

Upp komst um brot Morris-hjónanna þegar lögreglan lagði hald á síma og önnur tæki þeirra. Í skilaboðunum þeirra á milli mátti sjá samtal um kynferðislegt ofbeldi á börnum. Þá bjuggu hjónin til skilaboðahóp með barninu og ræddu í hópnum um hvernig þau ætluðu að níðast á því.

David Morris játaði einnig fyrir sín brot gegn barninu, sem voru alls 34 talsins, en dómur yfir þeim báðum verður kveðinn upp síðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta hefur aspasspákonan að segja um árið 2025

Þetta hefur aspasspákonan að segja um árið 2025
Pressan
Fyrir 2 dögum

Skoskur grínisti sturlaðist á bandarískum flugvelli

Skoskur grínisti sturlaðist á bandarískum flugvelli
Pressan
Fyrir 4 dögum

Málverk selt fyrir milljónir í gegnum tíðina – Saga þess er heldur nöturleg

Málverk selt fyrir milljónir í gegnum tíðina – Saga þess er heldur nöturleg
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hún varð heimsfræg fyrir að hafa læknast af krabbameini – En ekki var allt sem sýndist

Hún varð heimsfræg fyrir að hafa læknast af krabbameini – En ekki var allt sem sýndist