fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Kynning

Gefa 10 manna skötuveislu á Þorláksmessu til heppins lesanda – Keyrt heim að dyrum

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 21. desember 2021 17:00

Mynd/Sigtryggur Ari.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þessar samkomutakmarkanir hafa náttúrulega sett þessa vertíð í uppnám hjá okkur. Við seljum aðallega til veitingastaða, fyrirtækja og mötuneyta og því hefur verið talsvert um afpantanir. Við eigum því nóg til af kæstri skötu,“ segir Áslaug Ragnarsdóttir, eigandi Djúpsins fiskvinnslu úti á Granda.

Um er að ræða lítið fjölskyldufyrirtæki sem stofnað var árið 2019. Umsvifin hafa vaxið hratt og ýmis ævintýri bankað upp á. Á heimasíðu fyrirtækisins segir að þau séu leyst með kímnigáfu og gleði að vopni sem er auðheyrt í samtali við Áslaugu sem er eldhress þrátt fyrir krefjandi vendingar á skötumarkaði.

Djúpið sérhæfir sig aðallega í ferskum fisk en gerir undantekningu varðandi hina rammíslensku og sterklyktandi jólahefð. „Þorláksmessuskatan er í raun hálfgert áhugamál hjá okkur. Við byrjum snemma á árinu og erum að sanka að okkur hráefni allt árið. Þetta hefur gengið vel og meðal annars erum við að þjónustu Múlakaffi, Í mat og Brasserie Kársnes – þannig að við erum að gera eitthvað rétt,“ segir Áslaug.

Það hefur verið ljóst um tíma að vertíðin yrði með erfiðara móti en þegar að hertar samkomutakmarkanir voru kynntar í dag þá var ljóst að hafa þurfti hraðar hendur við að koma góðgætinu út. „Ég verð að losna við alla ammoníakslyktina úr húsinu,“ segir Áslaug og hlær.

Fyrirtækið hefur því ákveðið að gefa 10 manna skötuveislu í samstarfi við DV. „Við skutlum þessu bara upp að dyrum og hnoðmör og hamsatólg með,“ segir Áslaug hress.

Til þess að taka þátt þarf að fara inn á Facebook-síðu DV og skrifa með hverjum þú vilt njóta matarins með í athugasemd við færsluna sem sjá má hér fyrir neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“