Tveir rúmenskir ríkisborgarar voru dæmdir til skilorðsbundinnar fangelsisvistar í Héraðsdómi Vesturlands í vikunni fyrir að hafa látið greipar sópa hér á landi. Það var héraðsdómarinn Ingi Tryggvason sem kvað upp dóminn. Athygli vekur að þjófarnir eru sagðir hafa notað sérhannaða tösku til að fremja afbrot sín.
Þeir sem voru dæmdir heita Costel Mihai Pandele og Vasile Florin Cantaragiu. Costel hlaut fimm mánaða fangelsisdóm en Vasile þriggja mánaða dóm auk þess sem þeir þurftu að greiða lögmönnum sínum há málsvarnarlaun, Costel rúmar 1,6 milljónir og Vasile rúmar 1,5 milljónir.
Eins og áður segir var félögunum gefið að sök að hafa rænt fatnaði, ilmvötnum og öðrum verðmæti úr nokkrum verslunum á um sex vikna tímabili í september og október á þessu ári. Alls var um níu ákæruliði að ræða en ræningarnir létu greipar sópa í átta verslunum á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og á Akureyri.
Alls frömdu mennirnir fjögur brot í sameiningu auk þess sem Costel framdi fjögur brot til viðbótar með tveimur öðrum mönnum sem sluppu við refsingar. Í eitt skipti var Vasile hins vegar einn að verki.
Ákæruliðirnir snerust um eftirfarandi brot:
8. september – rændu þremur töskum og tveimur skópörum úr verslun Evu á Laugaveg að vermæti 51.900 kr.
24. september – rændu ilmvötnum úr Lyf og Heilsu á Glerártorgi á Akureyri að verðmæti 114.082 kr.
24. september – Rændu fatnaði úr Ísabella á Glerártorgi á Akureyri að verðmæti 113.360 kr.
24. september – rænt tveimur úlpum og bol úr verslun 66° Norður á Skipagötu á Akureyri verðmæti 94.100 kr.
9. október – rændu fatnaði úr Sports Direct í Kópavogi að verðmæti 163.900 kr.
16. október – þrjár húfur að verðmæti 27.029 kr. úr verslun Bláa Lónsins
19.október – rændu tveimur Canada Goose-úlpum úr verslun Bláa Lónsins að verðmæti 158.978 kr
25. október – rændu ilmvötnum úr Hagkaup Skeifunni að verðmæti 221.883 kr.
27. október – rændu öðrum tveimur Canada Goose-úlpum úr Bláa Lóninu að verðmæti 151.962