Samkvæmt frétt Sky News þá birti Nikki Darke, 37 ára, myndbönd á OnlyFans af sjálfum sér undir dulnefni. Á þessum upptökum sást hann viðhafa undarlegar kynlífsathafnir, að minnsta kosti í augum flestra.
Meðal þess sem hann gerði var að kasta af sér vatni á sæti í lestum og fróa sér fyrir framan aðra farþega. Þetta gerði hann í ferðum með Piccadilly line frá því í febrúar og fram í júlí. Hann var handtekinn í byrjun september þegar óeinkennisklæddir lögreglumenn báru kennsl á hann.
Við rannsókn á farsíma hans kom í ljós að hann hafði hlaðið niður ósæmilegu myndefni af börnum.
Þegar lögreglan spurði hann út í myndefnið sem hann var að birta, svaraði hann: „Þetta er ég að gera mjög heimskulega hluti á almannafæri.“
Hann sagðist fá greitt fyrir þetta og gerði þetta samkvæmt óskum greiðenda.
Hann var ákærður fyrir ósiðsamlega hegðun á almannafæri, skemmdarverk og fyrir vörslu barnakláms.
Hann var dæmdur í 16 mánaða fangelsi og bannað að taka myndir eða myndbönd á almannafæri næstu 10 árin.