fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Fókus

Eurovision nauðsynlegt í skammdeginu

Hljómsveitin Eva vill breyta heiminum – Syngja um flóttamenn

Indíana Ása Hreinsdóttir
Laugardaginn 23. janúar 2016 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við erum kannski ekki á meðal allra mestu „júrónörda“ en ég veit að það hefur verið leyndur draumur hjá Siggu að syngja í þessari keppni. Hún var lengi spéhrædd og vildi ekki viðurkenna það enda virðuleg listakona. Sjálf á ég í svona ástar/haturssambandi við þessa keppni og frekar dreymt um að semja lag fyrir keppnina. Lengi vel voru þessi lög frekar einsleit, frá ráðsettum körlum, en í dag er fjölbreytnin meiri og það er góð tilfinning að komast í gegnum síuna,“ segir Vala Höskuldsdóttir en hún og Sigríður Eir Zophaníasardóttir mynda hljómsveitina Evu.

Nýliðarnir bestir

Eva á lagið Ég sé þig í Söngvakeppninni 2016 en lagið fjallar um flóttafólk. „Þeir sem skilja boðskapinn og onntakið í laginu eru mjög ánægðir og þeir sem sýna okkur stuðning eru virkilega miklar grúppíur, sem er gaman. Ég er ekki sigurviss en ég veit að við erum með gott lag og eigum góða möguleika. Ég er hræddust við nýliðana. Það eru sterkustu lögin að mínu mati. Þetta verður mjög hörð keppni í ár.“

Conchita í uppáhaldi

Aðspurð nefnir Vala lag Conchitu Wurst sitt uppáhalds Eurovision-lag. „Mér fannst hún alveg mögnuð! Ég var að vinna á elliheimilinu Grund á þessum tíma og fannst ótrúlega gaman að horfa á þessa skeggjuðu konu með gamla fólkinu sem átti sumt erfitt með sig en var svo farið að halda með henni í lokin. Conchita kveikti á þeirri hugmynd að Eurovision væri góður staður fyrir aktívisma og til að koma mikilvægum skilaboðum á framfæri.“

„Ein vinkona okkar notaði það til að komast yfir ástarsorg.“

Til að skapa nýjan heim

Lagið Sjálfstæðar konur eru sjarmerandi er líklega þekktasta lag hljómsveitarinnar Evu hingað til. „Ég veit að mörgum konum þótti þetta valdeflandi lag. Ein vinkona okkar notaði það til að komast yfir ástarsorg. Hún fór í bústað og var með lagið á endurspilun þar til hún jafnaði sig. Við erum til fyrir svona; til að hafa áhrif. Ekki til að troða einhverju ofan í kokið á fólki heldur til að hreyfa við því og skapa nýjan heim.“

Vala segir konur mega læra af strákum að láta bara slag standa.
Hljómsveitin Eva Vala segir konur mega læra af strákum að láta bara slag standa.

Strákar framkvæma bara

Stelpurnar kunnu lítið á hljóðfæri þegar þær ákváðu að stofna sveitina. „Sigga kunni bara þrjú grip á gítar og var mjög lengi að skipta á milli og alltaf illt í puttunum. Hún er greinilega fljót að læra enda orðin mjög góð eftir þessi tvö ár sem við höfum verið band. Þetta var pælingin. Strákar eru nefnilega oft betri í að framkvæma bara. Auðvitað er gott að vanda sig og hugsa en það er líka gott að henda bara í þetta, gera það sem þarf að gera og æfast svo á leiðinni. Það er klárlega eitthvað sem við megum læra af bræðrum okkar. Samfélagið er fljótara að dæma ef kona gerir mistök. Við verðum að bylta þeirri hugmynd og gera fullt af mistökum. Ef margar konur eru að framkvæma alls konar hluti hefur samfélagið ekki tíma til að refsa okkur. Við getum alveg breytt hlutunum.“

Hefst allt á einstaklingnum

Sigríður er önnur þeirra sem stjórna útvarpsþættinum Sigga og Lolla á Rás 2 en Vala er listakona. „Þessa dagana erum ég og samstarfskona mín að vinna með Akureyringum að Borgarasviðinu hjá Leikfélagi Akureyrar. Við erum að einbeita okkur að þessum miklu tímamótum hjá Íslendingum og sérstaklega Akureyringum nú þegar við erum að taka á móti fólki á flótta. Samfélagið og líðandi stund er mér mjög hugleikið í list minni og þetta verkefni er efst á baugi núna. Það er svo mikilvægt að gera þetta vel og ekki bara hér á Íslandi heldur í öllum heiminum. Þetta hefst allt á einstaklingnum, hvar sem maður getur gripið niður, fá fólk til að skoða ótta sinn og afhlaða hann.“

Þurfum glimmer og pallíettur

Aðspurð segir hún fatavalið í söngvakeppninni ekki ákveðið. „Ég verð allavega í vesti og helst í gullslegnu vesti líkt og Pálmi Gunnarsson klæddist í Gleðibankanum. Ég er ferlega spennt og er eiginlega að uppgötva það núna í fyrsta skiptið hvað þessi keppni er mikilvæg fyrir okkur Íslendinga. Jólin eru búin og allt of margir búnir að taka niður jólaseríurnar. Við þurfum smá glimmer og pallíettur. Eurovision er okkar eina von til að komast í gegnum skammdegið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Beverly Hills höll Bennifer formlega komin í sölu – Sjáðu myndirnar

Beverly Hills höll Bennifer formlega komin í sölu – Sjáðu myndirnar
Fókus
Fyrir 5 dögum

Eddie Vedder segist hafa verið hætt kominn – Pearl Jam hættu við tónleika í London sem margir Íslendingar ætluðu á

Eddie Vedder segist hafa verið hætt kominn – Pearl Jam hættu við tónleika í London sem margir Íslendingar ætluðu á
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikarinn steinrunninn á meðan myndband af eftirmála voðaskotsins var spilað

Leikarinn steinrunninn á meðan myndband af eftirmála voðaskotsins var spilað