fbpx
Föstudagur 31.janúar 2025
Fréttir

Ósættið á Hótel Keflavík – Davíð segir ekkert lát á valdníðslu bróður síns – „Það á að halda áfram að klekkja á mér“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 8. desember 2021 17:30

Hótel Keflavík. Aðsend mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síðdegis á morgun, fimmtudaginn 9. desember, verður hluthafafundur í Hótel Keflavík ehf, þar sem lögð verður fram tillaga um að auka hlutafé félagsins um 60 milljónir króna. Eins og DV hefur greint frá hefur verið mikið ósætti á milli bræðranna Steinþórs Jónssonar, hótelstjóra á Hótel Keflavík og stærsta hluthafans, og yngri bróður hans Davíðs, sem Steinþór rak úr starfi aðstoðarhótelstjóra árið 2018.

Sjá einnig: Bræðrabylta í Hótel Keflavík: Saka Steinþór um valdníðslu – Davíð meinað um afgreiðslu á eigin hóteli

Síðan þá hefur Davíð, sem er næststærsti hluthafinn í hótelrekstrinum, þurft að reiða fram 20 milljónir króna til að halda hlut sínum í fjölskyldufyrirtækinu og ef ráðgerð hlutafjáraukning gengur eftir þarf hann að reiða fram 12 milljónir í viðbót til að hlutur hans rýrni ekki. Davíð segir hlutafjáraukningarnar tilhæfulausar þar sem rekstur hótelsins sé góður en þær séu gerðar til þess að bola honum út úr fyrirtækinu.

Eins og DV hefur greint frá áður fá Davíð og eiginkona hans ekki afgreiðslu á Hótel Keflavík og Steinþór hefur krafist lögbanns á komu þeirra á staðinn, sakar hann þau um áreitni við starfsfólk. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum hafnaði þessari kröfu og kærði Steinþór þann úrskurð til Héraðsdóms. Héraðsdómur staðfesti úrskurð sýslumanns en Steinþór hefur áfrýjað þeim úrskurði til Landsréttar.

Davíð segir í samtali við DV að hann og eiginkona hans sæki enn Hótel Keflavík, enda reksturinn í rétt tæplega 20% eign hans og hann hefur verið viðloðandi þetta fjölskyldufyrirtæki frá upphafi. Þau hjónin fá hins vegar enn ekki afgreiðslu á staðnum og þurfa vinir þeirra að panta fyrir þau veitingar. Staðan er því afar sérkennileg í þessu blómlega fjölskyldufyrirtæki.

Segir stjórnarformann handbendi Steinþórs

„Ég hef orðið að leggja 20 milljónir í fyrirtækið á einu og hálfu ári til að halda mínum eignarhlut í því. Núna verður mér gert að leggja fram 12 milljónir. Ég hreinlega veit ekki hvað ég á að gera,“ segir Davíð.

Stjórnarformaður félagsins er Pétur Jónsson en hann er einn í stjórn félagsins. Pétur er úr Reykjavík, er óskyldur þeim bræðrum þrátt fyrir föðurnafnið, og rak um tíma nokkra af stöðum Pizza Hut keðjunnar. Sjálfur var Davíð rekinn úr stjórninni. „Pétur Jónsson situr einn í stjórn félagsins eftir að mér og Magnúsi Jónssyni bróðir mínum var bolað út úr stjórninni og henni í framhaldi breytt í eins manns stjórn þegar við reyndum að fá mann fyrir okkur inn í stjórnina,“ segir Davíð og telur hann Pétur ganga erinda Steinþórs bróður síns.  Á síðasta hluthafafundi mælti Pétur Jónsson fyrir því að félagið myndi fjárfesta í glæsibifreið fyrir framkvæmdastjórann Steinþór Jónsson, að sögn Davíðs.

„Pétur Jónsson hefur að litlu sem engu leyti svarað fyrirspurnum mínum varðandi rekstur félagsins og tel ég hann vera að vinna myrkraverk með Steinþóri Jónssyni framkvæmdastjóra með það fyrir augum að Steinþór taki reksturinn til sín án þess að greiða nokkuð fyrir hann,“ segir Davíð enn fremur.

Davíð hefur boðist til að selja sinn hlut í fyrirtækinu en segir að því sé í engu svarað og engar umræður hafi farið fram um eðlilegt verð á hlutnum.

Davíð bendir ennfremur á að nýr lögmaður Hótels Keflavíkur, Garðar Gíslason, hafi áður starfað sem lögmaður Steinþórs og virðist mæta sem lögmaður hans á alla hluthafafundi félagsins. Hefur sá lögmaður verið ráðinn til að reka lögbannsmálið fyrir Landsrétti. „Það má því segja að ég sé að greiða lögmönnum beggja vegna borðsins en mínum lögmanni hef ég þurft að greiða sjálfur,“ segir Davíð.

Hvers vegna þarf alla þessa peninga?

Davíð segir engar forsendur fyrir allri þessari hlutafjáraukningju, samtals 160 milljónum á einu og hálfu ári, aðrar en þær að freista þess að þynna út hluti annarra hluthafa og láta Steinþór ná öllum völdum í fyrirtækinu. Segir hann að systir bræðranna láti Steinþór fara með atkvæði sitt á fundum og því sé staða Davíðs vonlaus. „Hvernig er með minnihlutaverndina í íslenskum hlutafélögum, er þetta leyfilegt?“ spyr Davíð.

Hann veltir því líka fyrir sér hvernig Steinþór bróðir hans hafi efni á allri þessari hlutafjáraukningu en hann hafi orðið að reiða fram yfir 60 milljónir til hlutafjáraukningar síðasta eina og hálfa árið og hann þurfi að leggja til 40 milljónir í viðbót ef nýjustu áform um hlutafjáraukningu ganga eftir.

Davíð bendir á að í nýlegri grein á Túrista.is hafi komið fram að fullbókað hafi verið á Hótel Keflavík í september og herbergjanýting þar sé mjög góð. Ekki séu því forsendur fyrir allri þessari hlutafjáraukningu þó að vissulega sé fyrirtækið í uppbyggingu.

„Arður í félaginu hefur ekki verið greiddur frá því árið 2018 en heildar arðgreiðslur frá árinu 2016 eru aðeins 14 milljónir. Hlutafjárhækkun frá 2020 er 100 milljónir og með hlutafjárhækkuninni núna upp á 60 milljónir er hlutafjárhækkun á eins og hálfs árs tímabili komin í 160 milljónir. Steinþór segir sjálfur í viðtalinu við Túrista að með því að hafa opið hafi tekist bæði að ná betri rekstraárangri og halda í föstu viðskiptavinina. En getur það talist góður rekstrarárangur að þörf sé á 160 milljónum frá hluthöfum á ekki lengri tíma en einu og hálfu ári?“ segir Davíð og hefur þungar áhyggjur af hluthafafundi morgundagsins.

DV hafði samband við Steinþór Jónsson vegna málsins og sagðist hann vera upptekinn á fundi og ekki geta svarað spurningum. Hann tók vel í að fá skriflegar spurningar í tölvupósti og verða svörum hans gerð skil síðar ef þau berast.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Flugslysið hörmulega: Ákvað að fara fyrr heim til að komast á stefnumót með kærastanum

Flugslysið hörmulega: Ákvað að fara fyrr heim til að komast á stefnumót með kærastanum
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Eydís allt annað en sátt við Ingu Rún: „Er konunni alvara?“

Eydís allt annað en sátt við Ingu Rún: „Er konunni alvara?“
Fréttir
Í gær

Ljósleiðari rofnað í tvígang í Húnavatnssýslum á skömmum tíma – Þungar áhyggjur

Ljósleiðari rofnað í tvígang í Húnavatnssýslum á skömmum tíma – Þungar áhyggjur
Fréttir
Í gær

Kynferðisbrotamaður sleppur með skilorð eftir að móðir og stjúpfaðir brotaþola létu hendur skipta

Kynferðisbrotamaður sleppur með skilorð eftir að móðir og stjúpfaðir brotaþola létu hendur skipta
Fréttir
Í gær

Sakar RÚV um fúsk og óvönduð vinnubrögð- „Hvað næst RÚV?“

Sakar RÚV um fúsk og óvönduð vinnubrögð- „Hvað næst RÚV?“
Fréttir
Í gær

Brynjar Karl sakar fréttamann um að hafa snúið út úr viðtali á versta veg – „Hvenær ætla menn að fatta að það er ekki hægt að leggja menn eins og mig í einelti?“

Brynjar Karl sakar fréttamann um að hafa snúið út úr viðtali á versta veg – „Hvenær ætla menn að fatta að það er ekki hægt að leggja menn eins og mig í einelti?“