Sérsveitin var um hádegisbil stödd í Þverholti í Reykjavík á æfingu. Sjónarvottar á svæðinu sögðust hafa heyrt í nokkrum skothvellum og höfðu ekki hugmynd að um æfingu væri að ræða.
Æfingin olli nokkrum titringi meðal fólks í nágrenninu sem heyrðu hljóðin og fylgdust með fylkingu brynvarðra sérsveitarmanna ryðjast inn í bygginguna.
„Sérsveitin er þarna í byggingunni fyrir neðan og nokkrir skothvellir búnir að heyrast. Fóru með byssu inn og allir skjaldaðir,“ er skrifað við Snapchat-myndband sem tekið var af aðgerðum sérsveitarinnar.
Ekki er vitað nákvæmlega hvað málið varðar. DV reyndi ítrekað að ná sambandi við lögregluna til að fá frekari upplýsingar um málið en fékk engin svör.
Uppfært: 14:10: Lögreglan hafði að lokum samband við DV til baka og lét þá vita að um æfingu hafi verið að ræða.