Í Silfrinu á RÚV í gær sagði Ólína Þorvarðardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkinarinnar að ekki hafi verið gott að eyða fjármunum ríkisins í kísilver PCC á Bakka við Húsavík þar sem því væri búið að loka. Í þættinum var verið að ræða um virkjanir, raforku og stóriðju hér á landi en Ólína velti því fyrir sér í þættinum hvers vegna stórfyrirtæki væru að fá afslátt af sköttum og raforku.
Í kjölfarið spurði Stefán Einar Stefánsson, fréttastjóri viðskiptafrétta á Morgunblaðinu, hvaða afslátt af sköttum Ólína væri að tala um en Stefán var einnig gestur í Silfrinu í gær. Ólína svaraði þeirri spurningu og sagði að hún væri að vísa í þá tvo milljarða sem fóru í kísilverið á Húsavík og að nú væri búið að loka því. „Tvo milljarða af almannafé. Það var aldeilis vel varið þeim fjármunum,“ sagði hún.
Orð Ólínu um að búið væri að loka kísilverinu voru þó ekki rétt samkvæmt Hjálmari Boga Hafliðasyni, sveitarstjórnarfulltrúa Framsóknarflokks í Norðurþingi. „Bara vitleysa“ og „bara bull“ sagði Hjálmar um orð Ólínu í samtali við mbl.is um málið. „Það gengur bara mjög vel hjá PCC og vonandi fara þeir bara í áfanga tvö og vonandi koma fleiri fyrirtæki á þetta iðnaðarsvæði sem við erum að undirbúa í sveitarstjórn.“
Kísilverinu var vissulega lokað í júní árið 2020 en var það einungis tímabundið gert vegna kórónuveirufaraldursins. Í apríl á þessu ári var starfsemin aftur komin í gang og í haust skilaði kísliverið rekstrarhagnaði í fyrsta skipti.
Hjálmar segir að það hafi í raun aldrei gengið eins vel hjá kísilverinu og núna. „Það munar mjög mikið fyrir sveitarfélagið þessi uppbygging sem hefur átt sér stað og var búið að undirbúa í áratugi,“ segir hann. „Það er svo dapurlegt að leyfa sér að segja þetta.“