Björg sinnir heimahjúkrun meðal annars í efri byggðum borgarinnar og segist hún í samtali við Morgunblaðið upplifa óöryggi í starfi eftir að ákveðið var að bílarnir skyldu ekki vera á nöglum.
„Það er allt annað veðurfar í efri byggðum. Ég myndi ekki fara út í óveðri á mínum bíl. En ég þarf að fara út í hvaða veðri sem er til að sinna vinnu minni. Ég er að fara til fólks sem er veikt. Ég þarf að koma því í rúmið, gefa því lyf,“ segir Björg við Morgunblaðið og bætir við að starfsmenn heimahjúkrunar séu oft snemma á ferðinni, jafnvel áður en búið er að ryðja snjó í öllum hverfum.
Þá bendir Björg á að starfsmenn séu ekki á neinum jeppum heldur smábílum á boð við Nissan Micra, Toyota Yaris og Kia Rio. Björg segist hafa mætt litlum skilningi hjá borginni vegna málsins og íhugar að segja upp störfum vegna þess.