fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

Staða miðlunarlóna leiðir til skerðinga á raforku

Eyjan
Föstudaginn 3. desember 2021 10:17

Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsvirkjun hefur ákveðið að takmarka afhendingu á raforku til fiskimjölsverksmiðja í janúar, en verksmiðjurnar sömdu við fyrirtækið um kaup á skerðanlegri orku.

Afhending til fiskimjölsverksmiðja verður takmörkuð við 25 MW í janúar, en á fullum afköstum geta verksmiðjurnar nýtt um 100 MW. Þessi skerðing heldur áfram í vetur ef aðstæður krefja þess. Haustið 2021 hefur verið kalt og þurrt og innrennsli til miðlunarlóna Landsvirkjunar verið töluvert undir meðallagi.  Niðurdráttur miðlunarlóna hófst strax 1. október og hefur verið eindreginn síðan.

Staðan er sérstaklega erfið á Þjórsársvæði, en þar hefur lítil úrkoma síðustu misseri valdið lágri grunnvatnsstöðu þannig að rennsli í Tungnaá og grunnvatnsrennsli til Þórisvatns hefur verið í sögulegu lágmarki. Þó staðan á Norðausturlandi sé betri þá nýtist hún ekki sem skyldi vegna takmarkaðrar getu flutningskerfisins að flytja orku milli landshluta.

Staðan hverju sinni verður metin og tekin ákvörðun í samræmi við hana um hvort framhald verður á þessum aðgerðum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Dagur segir freistingar hjá stjórnmálafólki að breikka gjá milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar

Dagur segir freistingar hjá stjórnmálafólki að breikka gjá milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson: VG út og Samfylking inn eða hrein vinstri stjórn nema miðjuflokkarnir bæti stöðu sína

Þorsteinn Pálsson: VG út og Samfylking inn eða hrein vinstri stjórn nema miðjuflokkarnir bæti stöðu sína
Eyjan
Fyrir 1 viku

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Gott að vita að stóru málin eru í lagi – lofsverð framsýni utanríkisráðherra

Svarthöfði skrifar: Gott að vita að stóru málin eru í lagi – lofsverð framsýni utanríkisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Miskunnsamur Samverji lögum samkvæmt

Þorsteinn Pálsson skrifar: Miskunnsamur Samverji lögum samkvæmt
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum