Orðið á götunni er að Ragnar Önundarson, viðskiptafræðingur, sem þekktur er fyrir útlitsgagnrýni sína í garð Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, ritara Sjálfstæðisflokksins, hafi fyrir mörgum árum bjargað lífi heimsfrægrar knattspyrnukempu. Ku Ragnar hafa verið við golfiðkun í Portúgal árið 2004, degi eftir að heimamenn höfðu lotið í gras fyrir Grikkjum, sem urðu Evrópumeistarar í knattspyrnu, mörgum til vonbrigða.
Þennan dag var óvenju heitt í borginni Sintra. Ragnar og félagar hans tóku því nóg af vatni með sér á golfvöllinn, þar sem bleiknefjar slíkir eiga oft bágt í sólinni. Þegar Ragnar og fylgisveinar hans voru hálfnaðir með hringinn, drógu tveir ungir heimamenn þá félaga uppi við 9. holuna. Voru þeir aðframkomnir af þorsta og urðu því fyrir miklum vonbrigðum með að sjálf sjoppan var lokuð. Reyndust þá góð ráð dýr. Annar þessara heimamanna reyndist vera heimsfrægur tuðrusparkari, sem látið hafði í minni pokann daginn áður fyrir Grikkjum. Ragnar sá aumur á tvíeykinu og bauðst vitanlega til að brynna boltasparkaranum og vini hans, enda nóg af vatni til á þeim bænum. Ragnar hefur sjálfur sagt, að það hafi reynst gaman að hafa náð að bjarga mannslífi, en þessi boltasparkari reyndist vera sjálfur Loðvík Fíkja, eða Louis Figo, þá fyrirliði Portúgals og eitt sinn dýrasti knattspyrnukappi heims og ein stærsta stjarna knattspyrnustórveldisins spænska, Real Madrid.