Áskorunin er í sjálfu sér einföld. Í henni felst að þátttakendur verða að forðast að heyra lagið Last Christmas með Wham frá 1. desember til miðnættis 24. desember.
Þetta er auðvitað ekki auðvelt því allt frá því að lagið komi út 1984 hefur það verið órjúfanlegur hluti af jólunum hjá mörgum og útvarpsstöðvar keppast við að spila það. Lagið er í dag talið meðal stærstu „jólaklassíkeranna“ hvað varðar tónlist.
En þrátt fyrir það reyna mörg þúsund manns að komast hjá því að heyra lagið fyrstu 24 daga desember ár hvert. Í því felst áskorunin.
Hún á rætur að rekja til Danmerkur en breiddist hratt út og nú er spurningin bara hvort þú ætlir að taka þátt?
Fyrsta reglan er að reyna að komast eins langt inn í desember eins og hægt er án þess að heyra Last Christmas.
Regla númer tvö er að áskorunin hefst 1. desember og lýkur á miðnætti þann 24.
Þriðja reglan er að það er aðeins upphaflega útgáfa lagsins sem gildir og því er í lagi að heyra remix og ábreiður af laginu án þess að detta úr leik.
Fjórða reglan er að þú ert úr leik um leið og þú heyrir lagið og áttar þig á að þetta er lagið.
Það má, tæknilega séð, senda öðrum tengla á lagið til að reyna að láta þá smella á og detta út en það er ekki hvatt til þess. Ef og þegar þú dettur úr leik þá má gjarnan birta færslu á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #whamageddon.
Nánar er hægt að lesa um þetta á heimasíðunni whamageddon.com og Facebooksíðu upphafsmanna leiksins.