Árið 1986 opnaði Eldsmiðjan í fyrsta skipti og hefur staðurinn því verið starfræktur í 35 ár. Nú virðist vera sem árin verði ekki fleiri því Gleðipinnar, eigendur Eldsmiðjunnar, hafa ákveðið að hætta starfsemi smiðjunnar.
Jóhannes Ásbjörnsson, einn eigandi Gleðipinna og talsmaður þeirra, segir í samtali við mbl.is að pizzumarkaðurinn hér á landi hafi þróast mikið og breyst á síðustu árum og að Eldsmiðjan í núverandi mynd falli ekki fullkomlega að framtíðarsýn Gleðipinna.
„Okkur Gleðipinnum þykir afar vænt um Eldsmiðjuna og það má segja að hún sé að fara í ótímabundið frí. Vörumerkið er rótgróið og sterkt og við munum að sjálfsögðu varðveita það áfram.“
Gleðipinnar ætla sér að opna nýjan pizzustað í húsnæði síðustu Eldsmiðjunnar á Suðurlandsbrautinni, OLIFA – La Madre Pizza.
Jóhannes segir að þó svo að Eldsmiðjan „sé farin í frí“ þá sé aldrei að vita nema að hún skjóti upp kollinum á ný seinna.