fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Mjólkurvörur hækka í verði í dag – Jólarjóminn hækkar

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 1. desember 2021 09:00

MS situr að stórum hluta markaðarins fyrir mjólkurvörur.Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mjólkurvörur hækka í verði í dag. Ástæðan er að aðföng kúabúa hafa hækkað og einnig hefur vinnslukostnaður mjólkursamlaga hækkað. Einn lítri af mjólk hækkar í dag úr 170 krónum í 176-177 krónur ef miðað er við að álagning verslana haldist óbreytt.

Morgunblaðið skýrir frá þessu. Fram kemur að verðhækkunin sé tilkomin vegna ákvörðunar verðlagsnefndar búvara sem hækkaði verð til bænda og afurðastöðva. Ákveðið var að taka væntanlegar launahækkanir í mjólkurvinnslunni um næstu áramót með inn í hækkunina til að ekki þurfi að hækka verðið aftur í janúar.

Bændur fá nú tæplega 105 krónur fyrir hvern mjólkurlítra en hækkunin til þeirra að þessu sinni er 3,38 krónur og byggist á hækkun á verði aðfanga og hækkun launa.

Heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara hækkar almennt um 3,81% en verð á mjólkurdufti helst óbreytt.

Rjómi hækkar og fer verðið úr 588 krónum fyrir hálfan lítra í 608 krónur miðað við verð í ótilgreindum stórmarkaði og miðað við að álagning verslunarinnar verði hlutfallslega sú sama og áður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Fjárfestar hafa sölsað undir sig tæplega 90% seldra íbúða á árinu – „Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt“

Fjárfestar hafa sölsað undir sig tæplega 90% seldra íbúða á árinu – „Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Pawel sakar stjórnvöld um aumingjaskap – „Hvernig væri að kalla stjórnendur þessa miðils í skýrslutöku“

Pawel sakar stjórnvöld um aumingjaskap – „Hvernig væri að kalla stjórnendur þessa miðils í skýrslutöku“
Fréttir
Í gær

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater
Fréttir
Í gær

Dómur kveðinn upp yfir Kourani – Hefur brotið af sér og ofsótt fólk árum saman

Dómur kveðinn upp yfir Kourani – Hefur brotið af sér og ofsótt fólk árum saman
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðrún ætlar ekki að flytja inn í Biskupsgarð – Agnes flytur út og glæsihýsið verður selt

Guðrún ætlar ekki að flytja inn í Biskupsgarð – Agnes flytur út og glæsihýsið verður selt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Drama í ófullgerðu fjöleignarhúsi – Ósátt við nýju veggina og neituðu að færa bílana

Drama í ófullgerðu fjöleignarhúsi – Ósátt við nýju veggina og neituðu að færa bílana