Rannsóknin hefur verið birt í The Journal of Sexual Medicine. Videnskab.dk skýrir frá þessu. Haft er eftir Christian Graugaard, lækni og prófessor við Kynlífsrannsóknardeild Álaborgarháskóla, að niðurstöður rannsóknarinnar sýni að klám sé útbreitt og að flestir klámneytendur telji klám vera til gagns og ánægju fyrir þeirra eigið kynlíf.
Sænska rannsóknin byggir á rannsókn á hegðun 14.135 þátttakenda. Karlarnir voru 6.169 og konurnar 7.966. Fólkið var á aldrinum 16 til 84 ára.
Graugaard sagði að rannsóknin sýni ákveðin tengsl sem valdi áhyggjum, til dæmis á milli óánægju með kynlíf og ákveðinna vandræða á kynlífssviðinu. En hann sagði ekki liggja fyrir hvaða tengsl eru á milli kláms og kynferðislegs heilbrigðis því rannsóknin sýni bara samtímamynd.
„Glímir maður við kynferðisleg vandamál af því að maður horfir á klám eða horfir maður á klám af því að maður glímir við kynferðisleg vandamál? Eða eru aðrir þættir sem valda því? Við fáum svarið við því þegar sömu þátttakendur verða rannsakaðir á nýjan leik eftir nokkur ár eða áratugi,“ sagði Graugaard.
Fleiri þátttakendur sögðu áhrif kláms vera jákvæð en þeir sem sögðu þau vera neikvæð. Hjá körlum átti þetta við um 23% en hjá konum um 15%. Um 5% þátttakenda af báðum kynjum sögðu áhrifin vera neikvæð.