Í aðventunni er gaman að njóta góðs matar með jólalegu ívafi með fjölskyldu og vinum. Berglind Hreiðars sem er einn vinsælasti köku- og matarbloggari landsins hjá Gotterí og gersemar hefur gaman að því að setja saman kræsingar með jólaívafi sem bæði gleðja auga og munn og þetta dásamlega brauðstangajólatré sem fyllt er með osti er engin undantekning. Þetta ostafyllta brauðstangajólatré er undursamlega gott og gleður augað. Það er hægt að bjóða uppá það eitt og sér og líka hafa það sem meðlæti og njóta. Uppskriftin er einföld og fátt er skemmtilegra en njóta jólalegra kræsinga í aðventunni og telja niður í jólin.
Ostafyllt brauðstangajólatré
660 g hveiti
1 msk. sykur
2 tsk. salt
1 pk. þurrger (11,8 g)
400 ml volgt vatn
2 msk. ólífuolía
Rúmlega ½ poki af rifnum Cheddar osti
- Setjið þurrefnin í hrærivélarskál með krókinn á og hellið vatni og ólífuolíu saman við og hnoðið í nokkrar mínútur.
- Penslið stóra skál með matarolíu, veltið deigkúlunni upp úr olíunni, plastið skálina og leyfið að hefast í um 1 klukkustund.
- Hitið ofninn í 200°C.
- Skiptið deiginu næst í tvo hluta. Fletjið annan út og mótið nokkurs konar jólatré/þríhyrning úr honum sem þekur bökunarplötu (á bökunarpappír) eins og unnt er (hægt að teikna á smjörpappír. Líka gott að renna hnífnum laust eftir deiginu til að gera smá línu áður en skorið er af deiginu til að það sé um það bil eins báðu megin.
- Penslið með hvítlaukssmjöri (sjá uppskrift að neðan) og stráið cheddar ostinum yfir smjörið.
- Fletjið hinn helming deigsins út og leggið ofan á, skerið síðan eftir línunum.
- Ímyndið ykkur síðan að það sé stofn upp með miðju jólatrénu og skerið jafnar lengjur til beggja hliða út frá „stofninum“, þær mega vera um 3 cm á breidd.
- Snúið síðan upp á hverja lengju svo úr verði snúin brauðstöng, það er allt í lagi þó smá ostur hrynji út.
- Penslið aftur með hvítlaukssmjöri og bakið í 15-20 mínútur eða þar til tréð er orðið vel gyllt.
- Takið úr ofninum og penslið einu sinni enn með vel af hvítlaukssmjöri.
- Njótið með pizzasósu.
Hvítlaukssmjör
200 g smjör (íslenskt smjör)
2 rifin hvítlauksrif
1 tsk. salt
½ tsk. hvítlauksduft
½ tsk. pipar
- Bræðið allt saman á vægum hita þar til smjörið er bráðið.
Hér fyrir neðan eru nokkrar leiðbeiningarmyndir hvernig má útbúa tréð: