Smitum hefur fjölgað ört í Suður-Kóreu að undanförnu og yfirvöld reyna nú að halda aftur af faraldrinum sem er farinn að valda miklu álagi á sjúkrahús. The Guardian skýrir frá þessu.
Fram kemur að í litlum bæ í Cheonan, sem er sunnan við höfuðborgina Seoul, séu að minnsta kosti 241 smitaður en 427 búa í bænum. Fólkið tengist trúarsöfnuði þar sem leiðtoginn er þekktastur fyrir að lækna fólk með því að pota í augu þess. Í yfirlýsingu frá suðurkóresku smitsjúkdómastofnuninni kemur fram að talið sé að um stóran faraldur sé að ræða.
Um 90% safnaðarmeðlima eru óbólusettir og meirihluti þess á í nánum samskiptum við hvert annað því fólkið býr saman. Margir safnaðarmeðlimir eru eldri en sextíu ára og óbólusettir að sögn embættismanna. Af þeim 241 sem hafa greinst með veiruna eru 17 bólusettir. Söfnuðurinn er almennt á móti stjórnvöldum og því hafa safnaðarmeðlimir flestir hverjir ekki látið bólusetja sig.