fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Fréttir

Forseti Hæstaréttar „lækaði“ afsökunarbeiðni Helga – Guðfinna segir það til marks um gerendameðvirkni dómstólanna

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 17. nóvember 2021 09:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og DV greindi frá rauf Helgi Jóhannesson, lögmaður, þögnina í gær varðandi þær ásakanir sem fram hafa komið í fjölmiðlum um kynferðislega áreitni í gegnum árin. Gekkst Helgi við ábyrgð í málinu og bað alla þá sem að eiga um sárt að binda eftir hegðun hans afsökunar.

Færslan féll í góðan jarðveg hjá mörgum vinum Helga í lögmannsstrétt sem að „lækuðu“ fyrirgefningarbeiðni lögmannsins. Þar á meðal var forseti Hæstaréttar, Benedikt Bogason, auk annars hæstaréttadómara.

Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar

Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, lögmaður og fyrrum borgarfulltrúi, vekur athygli á þessu á færslu á Facebook-síðu sinni og ljóst er að henni er ekki skemmt. „Talandi um íslenska réttarkerfið og gerendameðvirkni,“ skrifar Guðfinna.

Eins og gera mátti ráð fyrir vakti færsla Guðfinnu talsverða athygli og greinilegt er að hún féll í grýttan jarðveg á einhverjum vígsstöðvum. Þannig upplýsir Guðfinna að annar hæstaréttardómari hafi slitið rafrænni vináttu þeirra í fússi. Guðfinnu virtist skemmt yfir því. „En fyndið að segja frá því að Karl Axelsson hæstaréttardómari henti mér út af feisbúkk og blokkeraði mig í kjölfar þessarar færslu og kemst þar með í hóp með Ingu Sæland og Guðmundi Franklín,“ skrifar borgarfulltrúinn fyrrverandi.

Varasaksóknari vakti umtal

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem að umræða kviknar um umdeild „læk“ þeirra sem eru í æðstu stöðum réttarvörslukerfisins og hvaða merkingu bæri að leggja í þau. Í byrjun september vakti hegðun Helga Magnús Gunnarsson, varasaksóknari, á Facebook umtal en hann „lækaði“ meðal annars færslur þar sem þolendur kynferðisbrota, sem stigið höfðu fram, voru gagnrýndir.

Var hann í kjölfarið sakaður um óþolendavæna afstöðu og var meðal annars farið fram á að hann yrði settur af fyrir að lýsa skoðunum sínum með slíkum hætti.

Í sam­tali við mbl.is kvaððst Helgi Magnús ekki vera að sýna af­stöðu gegn þolend­um með því að líka við slík um­mæl­ og að hann væri ekki að taka hlið gerenda.„Ég tel þetta ekki sýna af­stöðu með ein­um né nein­um. Það felst ekk­ert í þessu annað en stuðning­ur við tján­ing­ar­frelsið og að báðir aðilar máls megi skýra sína hlið og ekk­ert meira. Ef það er ein­hver umræða í gangi þá er gott að við heyr­um all­ar hliðar máls. Það er bara hluti af eðli­legri skoðana­mynd­un,“ sagði Helgi Magnús.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Flugstjórinn sá eini sem komst lífs af

Flugstjórinn sá eini sem komst lífs af
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Baráttumaðurinn Unnar Karl Halldórsson fallinn frá

Baráttumaðurinn Unnar Karl Halldórsson fallinn frá
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fjölskyldufaðir ósáttur við að vera kallaður flugdólgur

Fjölskyldufaðir ósáttur við að vera kallaður flugdólgur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gleðifréttir fyrir líffæraþega – Sjúkratryggingar Íslands munu greiða allan kostnað við bólusetningar

Gleðifréttir fyrir líffæraþega – Sjúkratryggingar Íslands munu greiða allan kostnað við bólusetningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán Einar hraunar yfir kennaraforystuna – „Er metnaðarleysið algjört á þessum stöðum?“

Stefán Einar hraunar yfir kennaraforystuna – „Er metnaðarleysið algjört á þessum stöðum?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð