fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Pressan

Alvarlega slösuð eftir hrottalega nauðgun í almenningsgarði í Stokkhólmi

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 17. nóvember 2021 04:54

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona er alvarlega slösuð eftir hrottalega nauðgun og ofbeldi sem hún varð fyrir í almenningsgarði í miðborg Stokkhólms aðfaranótt mánudags. Málið er rannsakað sem morðtilraun og gróf nauðgun að sögn talskonu lögreglunnar.

Aftonbladet skýrir frá þessu.

Árásin átti sér stað í Tantolunden sem er á Södermalm. Lögreglunni var tilkynnt um málið um klukkan 2.

Aftonbladet hefur eftir talskonu lögreglunnar að konan sé alvarlega slösuð og hafi verið flutt á sjúkrahús með sjúkrabíl. Mikil leit hefur verið gerð að ofbeldismanninum sem hvarf gangandi á brott.

Konan var á gangi þegar maðurinn réðst á hana. Lögreglan hefur notað hunda, þyrlu og lögreglumenn á gangi og í bílum við leitina að honum. Einnig er verið að fara yfir upptökur úr eftirlitsmyndavélum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 dögum

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts
Pressan
Fyrir 5 dögum

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan
Pressan
Fyrir 5 dögum

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin
Pressan
Fyrir 6 dögum

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu