fbpx
Fimmtudagur 13.mars 2025
Fréttir

Sóley segir eðlilegt að fólk varpi ekki fram illa ígrunduðum skoðunum – „Ef ég færi inn í þá rökræðu þá yrði ég rökþrota á örfáum mínútum“

Jón Þór Stefánsson
Þriðjudaginn 16. nóvember 2021 22:20

Sóley Tómasdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í kvöld hélt fréttaskýringaþátturinn Kveikur umræðuþátt sem varðaði kynferðisofbeldi. Ástæðan var sú að síðasti þáttur Kveiks varðaði leikarann Þóri Sæmundsson sem vakti mikla athygli, en fékk ólíkar viðtökur, líkt og alþjóð veit.

Gestir þáttarins í kvöld voru þau: Ólöf Tara Harðardóttir meðlimur Öfga, Sóley Tómasdóttir fyrrverandi borgarfulltrúi og kynja- og fjölbreytileikafræðingur, Katrín Ólafsdóttir aðjúnkt við Háskóla Íslands, og Þórður Kristinsson doktorsnemi í mannfræði og jafnréttisfræðari.

„Ekki bara gerandinn sem er dæmdur“

Þóra Arnórsdóttir þáttarstjórnandi fullyrti að það væri tregða á meðal almennings að taka þátt í samtalinu um kynferðisofbeldi vegna ótta við það að „lenda í hakkavélinni“. Hún sagði það einnig eiga við um fólk með vel ígrundaðar skoðanir og fólk í akademíunni. Og vitnaði í kjölfarið í rithöfundinn Eirík Örn Norðdahl, sem sagði:

„Þessi mikla pólarísering, þar sem við hlaupum svo rosalega hratt til og dæmum. Þá er það ekki bara gerandinn sem er dæmdur heldur allir sem veita þeirri hugmynd eitthvert fulltingi að viðkomandi eigi sér málsbætur, eða eigi sér einu sinni sjónarhorn,“

Í kjölfarið óskaði Þóra eftir viðbrögðum Sóleyjar Tómasdóttur, sem sagði:

„Þegar við tölum um pólaríseringu og að við verðum bara að hlusta á hvert annað, þá erum við svolítið að setja þolendur og gerendur á jafnan stað. Ég er ekki viss um að það sé sanngjörn krafa að ætlast til þess af þolendum að hlusta á gerendur og fólk sem er meðvirkt gerendum.“ sagði Sóley og minntist síðan á það mikla ofbeldi sem konur hafa mátt þola í gegn um aldirnar.

„Núna þegar konur eru farnar að tala og krefjast þess að gerendurnir sem beita þær ofbeldi sæti einhverskonar ábyrgð, þá er komin upp svona ný tegund af þöggunaraðferð, af því að við óttumst alltaf að beita sjónum okkar að gerendum.“ sagði hún og bætti síðan við að tal um að þolendur þyrftu að róa sig og meint mannorðsmorð á gerendum væri ósanngjarnt gagnvart þolendum. Hún sagði að kjarni málsins fælist í því að fólk ætti erfitt með að horfast í augu við að það væru gerendur í samfélaginu.

Segir eðlilegt að fólk tjái sig ekki um málefni með illa ígrundaðar skoðanir

Stuttu seinna í þættinum tjáði Sóley skoðanir sínar á því að fólk þyrði ekki að tjá sig um umrædd málefni.

„Þetta er í raun eitthvað sem mér finnst eðlilegt. Sorry to say. Mér finnst eðlilegt að fólk stígi inn í umræðu sem það hefur ekki mjög ígrundaðar skoðanir á. Ég fer ekki inn í umræðu um byggingamannvirki, eða möskvastærðir. Það er viðurkennd sérfræðiþekking annars fólks. Ef ég færi inn í þá rökræðu þá yrði ég rökþrota á örfáum mínútum. Það er samt ekki litið á það sem jarðsprengjusvæði, eða viðkvæma umræðu. Nei það er bara viðurkennd sérfræðiþekking.“ Sagði hún og bætti við:

„Við verðum að fara að viðurkenna þá sérfræðiþekkingu sem felst í reynslu og menntun kynjafræðinga og aktísvista. Þetta er fólk sem talar af reynslu og þekkingu, og það er bara alveg eðlilegt að fólk sé ekki að setja fram einhverjar illa ígrundaðar skoðanir um þessi mál,“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Geðvernd og SÍBS áfram í pattstöðu út af Reykjalundi – Rúmlega hálfrar aldar gamall samningur ódrepandi enn þann dag í dag

Geðvernd og SÍBS áfram í pattstöðu út af Reykjalundi – Rúmlega hálfrar aldar gamall samningur ódrepandi enn þann dag í dag
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Sýður upp úr hjá Sósíalistum: Segist hafa upplifað útskúfun fyrir að segja sannleikann „um ofríki, andlegt ofbeldi og trúnaðarbrot Gunnars Smára“

Sýður upp úr hjá Sósíalistum: Segist hafa upplifað útskúfun fyrir að segja sannleikann „um ofríki, andlegt ofbeldi og trúnaðarbrot Gunnars Smára“
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Manndrápsmálið: Gæsluvarðhalds krafist – Búið að leiða einn fyrir dómara

Manndrápsmálið: Gæsluvarðhalds krafist – Búið að leiða einn fyrir dómara
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Manndrápsmálið: Þrír lausir úr haldi lögreglu

Manndrápsmálið: Þrír lausir úr haldi lögreglu
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Íslendingar steinhissa á Trump: „Þetta á eftir að enda með einhverjum ferlegum ósköpum“

Íslendingar steinhissa á Trump: „Þetta á eftir að enda með einhverjum ferlegum ósköpum“
Fréttir
Í gær

Jóhanna og Steinunn misstu syni sína unga – Hvernig er hægt að lifa með brostið hjarta?

Jóhanna og Steinunn misstu syni sína unga – Hvernig er hægt að lifa með brostið hjarta?
Fréttir
Í gær

Manndrápsmálið: Sjötti handtekinn eftir eftirför – Konu leitað

Manndrápsmálið: Sjötti handtekinn eftir eftirför – Konu leitað
Fréttir
Í gær

Fimm aðilar í haldi lögreglu vegna andláts manns

Fimm aðilar í haldi lögreglu vegna andláts manns
Fréttir
Í gær

Nauðsynlegt að koma á eðlilegri samskiptum við Rússland þó að samskiptin verði ekki góð lengi

Nauðsynlegt að koma á eðlilegri samskiptum við Rússland þó að samskiptin verði ekki góð lengi