fbpx
Föstudagur 22.nóvember 2024
Pressan

Lenti í klóm raðmorðingja – „Ég skil ekki að ég hafi lifað þetta af“

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 16. nóvember 2021 06:04

Frá vettvagni á heimili Fabienne. Mynd:Kanawha County Prosecutor's Office

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fabienne Witherspoon, 19 ára, hafði ekki hugmynd um að hún hafði sloppið úr klóm skelfilegs raðmorðingja og hún vissi heldur ekki að hún hafði slasað hann. Það eina sem hún vissi var að hún hafði reynt að bjarga sér og lagt allt að veði. Það var ekki fyrr en löngu síðar sem hún komst að því að árásarmaðurinn var skelfilegur raðmorðingi sem hafði mörg mannslíf á samviskunni.

Í nýrri heimildarmynd skýrir hún frá þeim örlagaríku klukkustundum sem breyttu lífi hennar að eilífu. ABC News skýrir frá þessu.

Fabienne var á leið heim með vinkonu sinni þann 13. maí 1992 í Charleston í Vestur-Virginíu þegar hún kom auga á ungan mann undir brú. Hann hélt á skilti þar sem hann bað um mat. Hann var einnig með ljósmynd af eiginkonu sinni og börnum. Fabienne vorkenndi manninum og ákvað að gefa honum mat og hlý föt. Hún bað hann um að bíða fyrir utan íbúð hennar á meðan hún færi inn að sækja þessa hluti. „Ég held að það hafi verið þá sem hann fór inn í íbúðina og náði í hnífinn,“ segir hún.

Á örskotsstund hafði þessi dularfulli maður gripið hníf í eldhúsinu og læst útidyrunum. Hann læddist aftan að henni og yfirbugaði hana og sagði: „Gerðu það sem ég segi og þá meiðist þú ekki.“

Fabienne. Mynd:Kanawha County Prosecutor’s Office

Því næst neyddi hann Fabienne til að fara inn á baðherbergi og beindi hnífnum að henni. „Í upphafi hugsaði ég: „Ókei, ég kemst í gegnum þetta. Ég kemst í gegnum þetta og hann fer og allt verður aftur í lagi.““ segir Fabienne.

Þegar maðurinn sagðist ætla að nauðga henni ákvað hún að berjast á móti. Hún horfði í kringum sig og sá önd úr keramiki. „Ég greip öndina og hugsaði: „Í kvikmyndum líður alltaf yfir fólk ef það fær högg á höfuðið. Það missir meðvitund.“ Svo ég tók öndina og byrjaði að lemja hann í höfuðið hvað eftir annað . . . en hann stóð bara þarna áfram,“ segir hún.

En hún gafst ekki upp við þetta og náði að taka hnífinn af manninum og stinga hann margoft en hann sló hana og náði í stól sem hann lamdi hana í höfuðið með. Hún missti meðvitund og rankaði ekki við sér fyrr en lögreglu- og sjúkraflutningamenn voru komnir í íbúðina. Hún var flutt á sjúkrahús í skyndi. Hún áttaði sig strax á að hún hafði bjargað lífi sínu en hún hafði ekki hugmynd um hver árásarmaðurinn var.

Tommy Lee Sells. Mynd:Kanawha County Prosecutor’s Office

 

 

 

 

 

 

Rannsókn leiddi í ljós að það var Tommy Lynn Sells sem hafði ráðist á Fabienne. Hún særði hann illa og hann þurfti að leggjast inn á sjúkrahús. Hann hlaut dóm fyrir árásina á hana og var dæmdur í nokkurra ára fangelsi en á þessum tíma grunaði lögregluna ekki að hann væri raðmorðingi. Það var ekki fyrr en sjö árum eftir árásina á Fabienne sem hann var handtekinn grunaður um morð. Hann var dæmdur fyrir eitt morð en lögreglan telur að hann hafi banað að minnsta kosti 22. Í yfirheyrslum sagði hann lögreglunni að hann hafi framið fyrsta morðið þegar hann var 16 ára.

Tommy Lynn Sells var tekinn af lífi 3. apríl 2014.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Piers Morgan biður grenjandi vinstri menn vinsamlegast um að halda kjafti – „Ég er kominn með nóg af þessu“

Piers Morgan biður grenjandi vinstri menn vinsamlegast um að halda kjafti – „Ég er kominn með nóg af þessu“
Pressan
Í gær

Fleiri ríki loka sendiráðum sínum í Kænugarði – Sálfræðihernaður hjá Rússum?

Fleiri ríki loka sendiráðum sínum í Kænugarði – Sálfræðihernaður hjá Rússum?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta eru umdeildustu skoðanir næsta heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna

Þetta eru umdeildustu skoðanir næsta heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bakpokaferðalag 19 ára stúlkna breyttist í martröð – Berjast fyrir lífi sínu eftir ferð á barinn

Bakpokaferðalag 19 ára stúlkna breyttist í martröð – Berjast fyrir lífi sínu eftir ferð á barinn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hér þarftu að passa töskuna þína og armbandsúr vel – Þjófagengi fara mikinn

Hér þarftu að passa töskuna þína og armbandsúr vel – Þjófagengi fara mikinn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hún var alltaf þreytt – Síðan fjarlægði hún eitt úr mataræði sínu og staðan gjörbreyttist

Hún var alltaf þreytt – Síðan fjarlægði hún eitt úr mataræði sínu og staðan gjörbreyttist