fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Fréttir

Starfsmaður leikskólans Sælukots kærður fyrir kynferðisbrot gegn barni – Amman segir barnið hafa lært kynferðislega hegðun af manninum

Erla Hlynsdóttir
Mánudaginn 15. nóvember 2021 12:59

Leikskólinn Sælukot. Mynd/Heiða

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlkyns starfsmaður leikskólans Sælukots í Reykjavík hefur verið kærður fyrir kynferðisbrot. Móðir þriggja ára stúlku leggur kæruna fram fyrir hönd dóttur sinnar sem hún segir að hann hafi brotið á þrívegis. Samkvæmt lýsingum barnsins er um gróf brot að ræða.  Þetta kemur fram á RUV.

Barnið sagði fyrst frá í fyrrahaust og málið tilkynnt til barnaverndarnefndar Reykjavíkur sem lagði til að maðurinn kæmi ekki nálægt barninu en hann var þó látinn starfa í afleysingum á deildinni hennar.

RUV greinir frá því að í sumar hafi stúlkan farið að sýna móður sinni kynferðislega hegðun sem hún sagðist hafa lært af manninum. Barnavernd var þá aftur látin vita og þáverandi leikskólastjóri lét barnið hitta starfsmanninn, faðma hann og sættast við hann, hefur RUV eftir ömmu barnsins.

Barnavernd lokaði málinu

Framkvæmdastjóri leikskólans hafi síðan yfirheyrt barnið með aðstoð túlks og niðurstaðan hafi verið að barninu hefði dreymt brotin. Barnavernd hafi siðan, að sögn ömmunnar, lokað málinu. Nú í ágúst hafi barnið síðan sagt frá þriðja brotinu.

Greint var frá því í gær að fyrrum starfsmenn leikskólans Sælukots á Þorragötu í Reykjavík, sem og aðstandendur barna sem hafa dvalið þar skora á yfirvöld að láta til sín taka í málefnum leikskólans sem þau segja í miklum ólestri. Áskorunin var sent til fjölda aðila, svo barnamálaráðherra, Barnavernd Reykjavíkurborgar, Ríkislögreglustjóra og Umboðsmann barna.

Ógnarstjórn og andlegt ofbeldi

Með bréfinu fylgja frásagnir fyrrum starfsmanna þar sem þeir lýsa ógnarstjórn, kvíða, undirmönnum, skort á faglegri þekkingu, andlegu ofbeldi, hættulegum vinnuaðstæðum og áreitni rekstraraðila utan skilgreinds vinnutíma, svo dæmi séu tekin. Í einni frásögninni segir:

„Öryggi barnanna á leikskólanum var og er að mínu mati ógnað og þar urðu óþarfa slys sem má rekja til ofangreindra aðstæðna. Þrátt fyrir ítrekuð samtöl, fundi og ábendingar um vankanta og mögulegar úrbætur þá voru engar aðgerðir gerðar af höndum stjórnenda. Alvarlegast þykir mér þó, hvar er eftirlitið? Hvernig stendur á því að svona sé leyft að viðgangast á Íslandi?“

Sláandi frásagnir um starfsemi leikskólans Sælukots – „Hvernig stendur á því að svona sé leyft að viðgangast á Íslandi?“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Flugstjórinn sá eini sem komst lífs af

Flugstjórinn sá eini sem komst lífs af
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Baráttumaðurinn Unnar Karl Halldórsson fallinn frá

Baráttumaðurinn Unnar Karl Halldórsson fallinn frá
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fjölskyldufaðir ósáttur við að vera kallaður flugdólgur

Fjölskyldufaðir ósáttur við að vera kallaður flugdólgur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gleðifréttir fyrir líffæraþega – Sjúkratryggingar Íslands munu greiða allan kostnað við bólusetningar

Gleðifréttir fyrir líffæraþega – Sjúkratryggingar Íslands munu greiða allan kostnað við bólusetningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán Einar hraunar yfir kennaraforystuna – „Er metnaðarleysið algjört á þessum stöðum?“

Stefán Einar hraunar yfir kennaraforystuna – „Er metnaðarleysið algjört á þessum stöðum?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð