fbpx
Föstudagur 22.nóvember 2024
Fréttir

Örvunarbólusetningar að hefjast af fullum krafti

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 15. nóvember 2021 09:00

Bólusetning með Pfizer bóluefni í Laugardalshöll Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Klukkan 10 hefst átak í örvunarbólusetningum. Á föstudaginn fengu 10.000 manns boð um að mæta í Laugardalshöll í örvunarbólusetningu og þar með fá þriðja skammtinn af bóluefni gegn kórónuveirunni.

Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Haft er eftir Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, að öllu hafi verið stillt upp á föstudaginn og því sé allt til reiðu. Hún sagði að sama fyrirkomulag verði viðhaft núna og var í vor nema hvað nú sé reynt að raða þessu þannig upp að röðin sé sem minnst úti vegna veðurs. Að öðru leyti séu ferlarnir hinir sömu og í vor.

Sex mánuðir þurfa að vera liðnir frá skammti númer tvö til að fólk sé boðað í örvunarbólusetningu. Af þeim sökum verður bólusett í sömu röð og gert var í vor. Allir munu fá bóluefni frá Pfizer eða Moderna en mikið er til af þeim. Markmiðið er að bólusetja 160.000 manns fyrir jól, eða um 10.000 á dag.

Ragnheiður sagði að af þessum fjölda séu um 110.000 til 120.000 á höfuðborgarsvæðinu.

Bólusett verður í Laugardalshöll á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum. Fólk fær boð um að mæta á ákveðnum tíma en ef það getur ekki mætt þá getur það mætt síðar að sögn Ragnheiðar. „Um leið og þú ert kominn með strikamerki þá getur þú bara komið,“ sagði hún.

50-60 manns munu vinna við bólusetningarnar í Laugardalshöll. Þetta er starfsfólk frá heilsugæslunni, lögreglunni og Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Mannskæður hernaður Rússa í Úkraínu – „Við nálgumst tölur eins og voru í síðari heimsstyrjöldinni“

Mannskæður hernaður Rússa í Úkraínu – „Við nálgumst tölur eins og voru í síðari heimsstyrjöldinni“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Sýknaður að hluta eftir bílaeltingaleik í Kjós – Þótti ekki líklegur til stórræða á 19 ára gömlum bíl

Sýknaður að hluta eftir bílaeltingaleik í Kjós – Þótti ekki líklegur til stórræða á 19 ára gömlum bíl
Fréttir
Í gær

Vilhjálmur bendir á hvað vaxtahækkun Íslandsbanka þýðir fyrir 45 milljóna króna lán

Vilhjálmur bendir á hvað vaxtahækkun Íslandsbanka þýðir fyrir 45 milljóna króna lán
Fréttir
Í gær

Kröfur í bú veitingastaðarins Héðins reyndust mun meiri en áður var talið

Kröfur í bú veitingastaðarins Héðins reyndust mun meiri en áður var talið
Fréttir
Í gær

Gosið fór yfir Grindavíkurveg í nótt – Fer 300 metra á klukkustund

Gosið fór yfir Grindavíkurveg í nótt – Fer 300 metra á klukkustund
Fréttir
Í gær

Er þriðja heimsstyrjöldin í uppsiglingu? Hvað segja sérfræðingar?

Er þriðja heimsstyrjöldin í uppsiglingu? Hvað segja sérfræðingar?