Í 41 ár var ekki vitað af hvaða stúlku líkið var og gekk hún undir heitinu „Jane Doe“ en það heiti sem er notað yfir látnar konur sem yfirvöld vita ekki deili á. En nú hafa yfirvöld loksins borið kennsl á líkið. Það er af Sherri Ann Jarvis frá Stillwater í Minnesota. Hún var 14 ára þegar hún var myrt.
Málið hafði verið sett til hliðar hjá lögreglunni en fyrir sex árum var Thomas Bean falið að rannsaka það á nýjan leik. Á síðasta ári voru gömul lífsýni, tengd málinu, send til rannsóknar hjá Othram rannsóknarstofunni. Niðurstaðan lá fyrir í mars á þessu ári. Með því að notast við ættfræðigagnagrunna tókst lögreglumönnum að rekja slóðina til sex manns sem tengjast Sherri beinum fjölskylduböndum.
Í yfirheyrslum yfir sexmenningunum kom fram að þegar Sherri var 13 ára hafi hún ekki mætt í skóla um langa hríð. Í kjölfarið var hún tekin úr umsjá foreldra sinna og komið fyrir á stofnun. Þaðan lét hún sig síðan hverfa og tilkynnti stofnunin um hvarf hennar.
Skömmu eftir að hún var tekin frá foreldrum sínum sendi hún þeim bréf þar sem hún sagðist ætla að koma aftur heim þegar hún losnaði af stofnuninni. En hún sneri aldrei aftur heim.
En enn er ekki vitað hver myrti Sherri. ABC 13 segir að lögreglan í Walker County vinni enn að rannsókn málsins.
Fox 8 birti yfirlýsingu frá fjölskyldu Sherri þar sem öllum þeim sem unnu að rannsókn málsins er þakkað fyrir. Einnig segir að Sherri hafi verið 13 ára þegar hún var tekin úr umsjá foreldra sinna og að þau hafi látist án þess að vita að lík hennar hafði fundist.