Fjöldi lögreglumanna og sjúkrabíla var strax sendur á vettvang. Tveir fullorðnir voru handteknir á vettvangi sagði talskona lögreglunnar. Aftonbladet segist hafa heimildir fyrir að börnin hafi verið stungin og síðan kastað út af svölum eða út um glugga.
Talskona lögreglunnar staðfesti að málið væri rannsakað sem morðtilraun. Hún sagði að börnin væru yngri en 10 ára og gruni lögregluna að þau hafi fallið til jarðar úr mikilli hæð. Hún sagði að þeir sem voru handteknir séu grunaðir um morðtilraun og tengist börnunum en vildi ekki skýra nánar í hverju þau tengsl eru fólgin. Aftonbladet segir að annar hinna handteknu sé aðilinn sem fannst slasaður í íbúð í húsinu.
Börnin voru flutt með þyrlu á sjúkrahús en þau eru mjög alvarlega slösuð. Aftonbladet segir að lögreglan telji að börnin hafi verið stungin inni í íbúðinni og síðan hent fram af svölum hennar sem eru í um 15 metra hæð.
Uppfært klukkan 07.47
Annað barnið er látið að sögn Aftonbladet og hitt er í lífshættu. Það eru karl og kona sem voru handtekin vegna málsins. Expressen segir að karlmaðurinn sé faðir barnanna.