Frá þessu er skýrt á Facebooksíðunni Vigur Island. Á myndinni sést að umslagið var sett í póst í New York þann 21. september og þrátt fyrir að heimilisfang viðtakenda sé um margt óljós þá rataði það á réttan stað.
Í athugasemdum birtir Ó Smári Kristinsson síðan mynd af öðru umslagi sem var með enn fátæklegri áritun en rataði samt sem áður á áfangastað. Það er stílað á Æðey IS. Það má líklega teljast töluvert afrek þýskra póststarfsmanna að hafa áttað sig á að umslagið ætti að fara til Íslands.