fbpx
Miðvikudagur 22.janúar 2025
Fréttir

Ingvi Hrafn ákærður fyrir Sushi Social árásina – Gekk laus fram að byssubrotum í Borgartúni

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 9. nóvember 2021 14:00

mynd/samsett

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Ingva Hrafni Tómassyni fyrir „sérstaklega hættulega líkamsárás“ á veitingastaðnum Sushi Social við Þingholtsstræti í apríl á þessu ári.

Er Ingva gefið að sök í ákærunni að hafa veist að fórnarlambi sínu með hníf þannig að hann hlaut fimm skurði á líkama sinn, einn við vinstri öxl og fjóra á vinstri handlegg. Segir í ákærunni að skurðirnir hafi verið 2,5 – 5 sentimetra langir og tveir þeirra náð niður í vöðva.

Brotaþoli krefst þriggja milljóna bótagreiðslu úr hendi Ingva Hrafns. Saksóknari krefst þess að Ingvi verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Árásin náðist á myndband

DV sagði frá því í apríl á þessu ári að harkaleg slagsmál hefðu brotist út á Sushi Social og birti með fréttinni myndband sem aðrir gestir veitingastaðarins tóku af átökunum. Strax varð ljóst að eitthvað mikið hafði gengið á á milli mannanna, en á myndbandinu má sjá árásarmanninn sveifla því sem virðist vera hnífur í átt að öðrum manni.

Sjá nánar: Harkaleg slagsmál á Sushi Social í gær

Starfsmaður á veitingastaðnum sagði í samtali við DV að árásin hefði tekið fljótt af og að lögregla hafi verið fljót á vettvang. „Þetta var bara mjög fljótt að gerast, maður sá varla hvað var í gangi. Þetta byrjaði og endaði áður en maður vissi af því og svo var lögreglan bara mætt,“ hafði DV eftir starfsmanninum í apríl.

Gekk laus fram að atvikinu í Borgartúni

Ingvi Hrafn var handtekinn skömmu eftir árásina en ekki var farið fram á gæsluvarðhald yfir honum. Aðeins rúmum tveimur mánuðum síðar var Ingvi aftur handtekinn fyrir að hafa veifað hlaðinni skammbyssu í húsakynnum Samhjálpar í Borgartúni og síðar gengið niður Borgartúnið með skammbyssuna í hendi sér þar til hann var handtekinn við gatnamót Sæbrautar.

Sjá nánar: Ingvi Hrafn ákærður fyrir að beina byssu að vegfarendum og lögreglu – „Hamar var uppdreginn, skothylki í hlaupi og önnur 6 í skotgeymi“

Mikill ótti greip um sig vegna athæfis Ingva Hrafns í Borgartúninu þennan dag. Þannig lýsti til dæmis Þráinn Bj. Farestveit, framkvæmdastjóri Verndar áfangaheimilis fyrir fanga, upplifun sinni á þann veg að Ingvi hafi verið verulega ógnandi og að honum hafi liðið eins og hann væri mættur til markvissra aðgerða með byssuna að vopni.

Sjá nánar: Sá sem mundaði hlaðna skammbyssu í Samhjálp réðst einnig á mann með hnífi á Sushi Social í apríl

Langur sakaferill að baki

Ingvi Hrafn var fyrir um hálfum mánuði dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir ýmis brot, framin við skrifstofu Samhjálpar í júní. Sakaferill Ingva teygir sig þó lengra aftur í tímann. Hefur hann meðal annars áður verið dæmdur fyrir innbrot, þjófnað, ýmis fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot.

Mál héraðssaksóknara gegn Ingva verður þingfest 15. nóvember næstkomandi í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands mótmæla Coda Terminal – „Allt of mörgum spurningum er ósvarað“

Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands mótmæla Coda Terminal – „Allt of mörgum spurningum er ósvarað“
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Örn vill að borgin setji lóðaleigu á flugvöllinn – „Þeir rændu þá besta mannvistar- og byggingarsvæði Reykvíkinga“

Örn vill að borgin setji lóðaleigu á flugvöllinn – „Þeir rændu þá besta mannvistar- og byggingarsvæði Reykvíkinga“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ökukennari segir illa komið fram við eldri ökumenn: „Að mínu mati al­gjör­lega út í hött“

Ökukennari segir illa komið fram við eldri ökumenn: „Að mínu mati al­gjör­lega út í hött“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Dagur kveður borgarstjórn eftir nær aldarfjórðung – „Ég elska Reykjavík“

Dagur kveður borgarstjórn eftir nær aldarfjórðung – „Ég elska Reykjavík“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Illugi ómyrkur í máli – „Þetta var Hitlers-kveðja og ekkert annað“

Illugi ómyrkur í máli – „Þetta var Hitlers-kveðja og ekkert annað“
Fréttir
Í gær

Höggvinn með exi á A. Hansen – Svaraði fyrir sig með hnefunum 20 árum síðar á Castello

Höggvinn með exi á A. Hansen – Svaraði fyrir sig með hnefunum 20 árum síðar á Castello
Fréttir
Í gær

Maður á sextugsaldri misþyrmdi lögreglumanni í Þarabakka

Maður á sextugsaldri misþyrmdi lögreglumanni í Þarabakka