Umsóknarfrestur um embætti forstjóra Landspítala rann út á miðnætti. Umsækjendur eru 14 og eru nöfn þeirra birt hér að neðan í stafrófsröð. Heilbrigðisráðherra skipar í embættið til 5 ára frá 1.mars 2022.
- Björn Óli Ö Hauksson, verkfræðingur
- Elísa Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, settur forstjóri
- Gunnar Ágúst Beinteinsson, framkvæmdastjóri mannauðsskrifstofu
- Hákon Hákonarson, læknir
- Jan Triebel, læknir
- Jón Magnús Kristjánsson, framkvæmdastjóri lækninga
- Kristinn V Blöndal, ráðgjafi
- Markús Ingólfur Eiríksson, forstjóri
- Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga
- Reynir Arngrímsson, læknir og prófessor
- Runólfur Pálsson, starfandi framkvæmdastjóri meðferðarsviðs
- Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar
- Sigurður Erlingsson, viðskiptafræðingur
Þriggja manna hæfnisnefnd, mun nú meta hæfni umsækjanda. Nefndin er skipuð svo:
Aðalmenn
- Anna Stefánsdóttir, hjúkrunarfræðingur og formaður stjórnar Reykjalundar, formaður
- Bjarni S. Jónasson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri
- Gyða Baldursdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Lyflækningasviðs Landspítala
Varamenn
- Magnús Karl Magnússon, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands
- Guðjón Hauksson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands
- Anna Björg Jónsdóttir, öldrunarlæknir Landspítala