Fjölmargir hafa haldið því fram undanfarinn sólarhring að Reynir Bergmann hafi sett á svið samskipti við gamla vinkonu og blaðakonu til að sanna að skipulega sé reynt að fá konur til að stíga fram og saka hann um ofbeldi. Reynir þvertekur fyrir þessar ásakanir og telur að femínistar hafi misst sjónar á því sem skipti máli eftir. Hefur hann komist að þessari niðurstöðu eftir að hafa séð á þriðja þúsund skjáskota úr lokuðum hópum og einkaspjöllum kvenna.
Reynir Bergmann, eigandi Vefjunnar og áhrifavaldur, hélt því fram á Facebook fyrr í vikunni að skipulega væri reynt að fá konur sem hann hafi sængað hjá til að saka sig um kynferðisofbeldi. Deildi hann því til staðfestingar skjáskotum af samskiptum sem hann segir vera milli sín og gamallar vinkonu sem og skjáskotum af samræðum sem umrædd vinkona á að hafa átt við ónefnda blaðakonu.
Málið hefur verið nokkuð til umræðu á samfélagsmiðlum og þar er því haldið fram að vísbendingar séu í skjáskotunum sem Reynir deildi um að hann hafi í reynd sett þau á svið.
Vísbendingarnar sem nefndar hafa verið eru meðal annars að allir aðilar, Reynir sjálfur, blaðakonan og gamla vinkonan, geri öll bil á undan spurningarmerki, vinkonan og Reynir skrifi bæði „segja“ sem „seigja“ og skrifi „eitthvertíman“ í staðinn fyrir einhvern tímann, svo dæmi séu tekin.
Eins sé óvenjulegt að tala um kynferðisofbeldi sem „alvarlega nauðgun“ og svo þótti mörgum grunsamlegt að blaðakonan tali um „kynfærislegt“ ofbeldi í staðinn fyrir að segja „kynferðisofbeldi“ en því er haldið fram að Reynir sjálfur hafi stundum notað einmitt þetta orð, „kynfærislegt“.
Tveir stórmerkilegir hlutir við þetta mál:
– Blaðakona, Guðrún og Reynir nota öll bil á undan spurningamerki.
-Blaðakona og ákveðin veitingamaður nota bæði málvilluna "kynfærislegt" yfir ofbeldi sem er kynferðislegt.
Annars bara allir flottir pic.twitter.com/B9qpzW2czm— Heidrun Arna (@Heidrunarnan) November 4, 2021
Reglulega fæ ég skilaboð í þessum dúr frá frægum köllum sem ég hef sofið hjá eitthvertíman á lífsleiðinni… Þar sem þeir eru spurðir um kynlífið með mér eða hvort við höfum sofið saman 😔 BTW ég var reyndar búinn að gleyma þessum sexý atburði að beiðni sendanda 🙏 pic.twitter.com/qcl9YL7FvP
— Jafet Sigfinnsson (@jafetsigfinns) November 5, 2021
Ég held að ég muni aldrei hætta að hlægja að Reyni Bergmann og þessari tilraun hans😂
— Steingrímur (@Arason_) November 5, 2021
ég get ekki hætt að hugsa um vefju gaurinn, þetta falsaða samtal getur ekki verið real life, þetta hlýtur að vera bit, þetta er of mikið, ég er að deyja
— 🅱️onservative teenager (@Thugsbemakinout) November 5, 2021
Aumingja Reynir Vefjan er svo slakkt fyrirtæki að eina leiðin til að hún fái einhver viðskipti er með svona falspóstum þar sem hann reynir að búa til falspóst til að sníkja meðaumkun. Hvar er #kveikur eða @dv_is þegar á þarf að halda? https://t.co/nBWkUFGOYQ
— Oskarsteinn Gestsson (@OskarsteinnG) November 5, 2021
Inni í Facebook-hópi Fjölmiðlanörda var spurt hvort það væri ekki óboðlegt að blaðakona gengi fram með þeim hætti og skjáskot Reynis sýni fram á. Margir halda því þar fram í athugasemdum að samskiptin séu sviðsett.
„Er alveg vitað að þetta sé blaðakona en ekki bara tilbúningur,“ spyr einn.
Annar veltir því fyrir sér hvort um tilbúið leikrit sé að ræða: „Ég vona að það séu engar blaðakonur svona illa að máli farnar. Velti því fyrir mér hvort þetta sé tilbúið leikrit, en ætla ekki að halda neinu fram. Svo notar þessi „meinta blaðakona“ líka orðið „kynfærislegt“ sem er einmitt orðavilla sem ákveðinn aðili hefur sjálfur áður notað um „kynferðislegt“.“
Enn annar rekur nokkrar málvillur sem komi fyrir í samskiptunum, sem veki spurningar: „„Sæll Gunna“, „Seigir“, „Kynfærislegt“. Smá humblebrag um threesome. Bæði hann og „Gunna“ skrifa „eitthvertíman“. Ekki að segja að Reynir hafi skrifað þetta sjálfur, en það lítur alveg smá út eins og Reynir hafi skrifað þetta sjálfur“
Reynir sjálfur þvertekur fyrir að hafa falsað samskiptin í samtali við DV.
„Ég hef hvorki gáfur né tíma til að dunda mér við svona föndur,“ segir Reynir. Hann telur að barátta aktívista í dag sé hægt og rólega að snúast upp í andhverfu sína. „Því miður, eins og þetta er þörf umræða í þjóðfélaginu þá er hún framkvæmd svo vitlaust og aftökurnar eru skelfilegar.“
Reynir segist vera með á þriðja þúsund skjáskota undir höndum sem hann hafi fengið send frá konu sem hafi misboðið framferði femínskra aktívista undanfarið. Skáskotin komi úr lokuðum hópum á Facebook og Messenger-spjöllum.
„Þetta er komið núna i nokkur þúsund skjáskot af svakalegu stöffi sem myndi kála þessum hóp algjörlega sem og einstaklingum ef ég myndi birta nöfn þeirra og aðgerðarplön.“
Hann hafi þó ekki viljað birta þessi skjáskot þar sem hann kæri sig ekki um að ráðist verði að nafngreindum konum sem margar hverjar eigi börn og fjölskyldur og hafi barist fyrir góðum málstað. Hann telur þó að baráttan í dag sé hætt að snúast um þolendur og það þykir honum miður.
„Ef þær finna einhvern sem hefur lent í þjóðþekktum manni, má vera eldgamalt, bara finna eitthvað, eins og þær orða það, og þá leggja þær ekki þungann í að leiða stelpugreyið á réttan stað og hugga heldur þakka henni pent og negla gerandann niður, hvort sem hann hafi gert eitthvað eða ekki. Það er svo röng aðferðafræði. Enginn hlustar á fólk þegar öskrin, hatrið og reiðin er svona mikil. Það þurfa allir að taka spjallið og laga landið. Það gerist alls ekki svona. Ég held með sumum þeirra svo ég ætla mér ekki að birta þessar færslur með nöfnum.“
Reynir biður baráttukonur og aktívista að fara varlega og gæta sín hvað þær segi því orðum þeirra sé lekið út úr þeirra innsta hring.
Orðalagið í skjáskotunum sem Reynir deildi, hvort sem samskiptin eru fölsuð líkt og fjölmargir hafa haldið fram og rökstutt, eða ekki líkt og Reynir segir, hefur í dag verið haft að háði og gamni af íslenska Twitter-samfélaginu.
Sorí vinur en Þu faerd bara kansell à þig ut af KYNFÆRIS getnað
— Tanja Ísfjörð (@tanjaisfjord) November 5, 2021
Vona að allir munu eiga góðan getnað í dag 🤍 https://t.co/p50LJQPb1i
— Silja Sif (@Silja_Sif) November 5, 2021
sæl guðrun og takk fyrir þetta kyntækifæri en eg er að keyra suður og það er ansi kynfært yfir kynheiðina þó að veðrið hafi nú verið svolítið kynfærislegt en hvað getnaðinn varðar þá mætti jafnvel kalla mig kyntækifærissinna
— Karel Örn Einarsson (@refsari) November 5, 2021
Ég bara gleymdi þessum getnaði
— Henrý (@henrythor) November 5, 2021
Pælið í því að tala um kynlíf sem getnað 🥲
Hver ertu eiginlega? Georg Bjarnfreðarson?— Inga (Yes Sir I Can) Boogie (@Inga_toff) November 5, 2021