Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir er komin með kærasta. Fréttablaðið greinir frá.
Sá lukkulegi er Ólafur Friðrik Ólafsson en hann var einnig kærasti Jóhönnu á árunum 2008 til 2010.
Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir hefur í mörg ár fangað hug og hjörtu Íslendinga með hugljúfri rödd sinni og faglegri framkomu. Jóhanna varð snemma landsþekkt en hún var lengi talin ein skærasta barnastjarna landsins og hefur því verið í sviðsljósinu öll sín mótunarár. Hún er ein af stærstu söngdívum landsins og skilaði Íslandi öðru sætinu í Eurovision-keppninni árið 2009.
Jóhanna Guðrún var gift tónlistarmanninum Davíð Sigurgeirssyni. Þau giftu sig árið 2018 og eiga saman tvö börn. Það var greint frá skilnaði þeirra í september.
View this post on Instagram
Jóhanna Guðrún gefur út hresst jólalag í dag. Lagið heitir einfaldlega Ætla ekki að eyða þeim ein. Lag og texta samdi Ásgeir Orri Ásgeirsson en hann sá einnig um upptökustjórn.
Jóhanna gaf út plötuna Jól með Jóhönnu í nóvember á síðasta ári og naut hún töluverðra vinsælda. Á plötunni eru tíu lög. Fimm þeirra eru frumsamin og fimm eru tökulög. Tveir gestasöngvarar eru á plötunni en það eru þeir Sverrir Bergmann og Eyþór Ingi Gunnarsson.
Hægt er að hlusta á lagið á Spotify.