fbpx
Þriðjudagur 21.janúar 2025
Fréttir

Brjánn útskýrir hvers vegna hann fyrirgaf morðingja dóttur sinnar – „Maður myrti dóttur mína. Yndið mitt“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 3. nóvember 2021 21:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brjánn Guðjónsson lagði í kvöld orð í belg í samfélagsumræðu um fyrirgefninguna. Hann tengdi ekki við orðræðu Sigríðar Þorgeirsdóttur, prófessors í heimspeki, sem var í viðtali við Kastljós í kvöld, en Sigríður telur að hugtakið „fyrirgefning“ eigi ekki við í umræðu um #metoo mál. Tilefni viðtalsins var viðtal Kveiks við leikarann Þóri Sæmundsson sem hefur upplifað útskúfun undanfarin ár eftir að hann sendi nektarmyndir til ólögráða (að líkindum) stúlkna á Snapchat árið 2017. Hefur viðtalið við leikarann orðið mjög umdeilt og í raun klofið íslenskan netheim niður í tvær fylkingar.

Brjánn Guðjónsson er faðir Birnu Brjánsdóttur sem  Thomas Fredrik Møller Olsen myrti þann 14. janúar árið 2017. Var Thomas dæmdur í 19 ára fangelsi fyrir morðið í september sama ár.

Brjánn ritaði pistil um fyrirgefninguna sem hann veitti DV leyfi til að endurbirta. Þar gerir hann skarpan greinarmun á fyrirgefningu og afsökun. Hann segist hafa fyrirgefið morðingjanum einfaldlega til að veita honum ekki rými í huga sér: „Ég ákvað að fyrirgefa honum. Í því fólst ekki afsökun. Sökin verður aldrei afmáð og megi hann rotna fyrir mér.“

ég byrjaði að horfa á Kastljós. þar var til viðtals Sigríður Þorgeirsdóttir, prófessor í heimspeki. eftir fyrsta svar hennar nennti ég ekki að hlusta lengur.

hún er ef til vill hámenntuð og fín, en hefur líklega enga reynslu af því sem hún er að tala um.

fyrirgefning og afsökun eru algerlega gerólíkir hlutir.

afsökun er að líta svo á að sök einhvers gagnvart manni verði afmáð. eitthvað sem einhver gerði á manns hlut muni maður eftirleiðis líta framhjá og jafnvel gleyma með tímanum.

svona eins og ef einhver gleymdi að sækja mann út á stoppistöð.

fyrirgefning er allt annað og fyrirgefning felur alls ekki í sér afsökun.

fyrirgefning er að láta af hatri eða öðrum vondum tilfinningum í garð einhvers sem hefur gert á þinn hlut.

þetta tvennt er svo gersamlega ólíkt að ég þurfti að spóla til baka og hlusta aftur á hvað prófessorinn sagði.

maður myrti dóttur mína. yndið mitt. ég ákvað að fyrirgefa honum. í því fólst ekki afsökun. sökin verður aldrei afmáð og megi hann rotna fyrir mér.

ég ætla samt ekki að skaffa honum herbergi í hausnum á mér, sem ég myndi gera með að vera uppfullur af hatri sem myndi gera engum skaða nema mér sjálfum.

þannig að ég ákvað að fyrirgefa (ekki afsaka) til að losna við hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Guðmunda þekkir það vel að vera aftast í röðinni og gleymast – „Ég lifi það ekki af að bíða svo lengi, henni varð á að hlæja“

Guðmunda þekkir það vel að vera aftast í röðinni og gleymast – „Ég lifi það ekki af að bíða svo lengi, henni varð á að hlæja“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Dóri DNA segist með Mosfellsbæ á heilanum – „Þarna er hugsað stórt og ég elska þegar það er hugsað stórt“

Dóri DNA segist með Mosfellsbæ á heilanum – „Þarna er hugsað stórt og ég elska þegar það er hugsað stórt“
Fréttir
Í gær

Samfylkingin fær á baukinn: Segir að kjósendur séu hafðir að fíflum

Samfylkingin fær á baukinn: Segir að kjósendur séu hafðir að fíflum
Fréttir
Í gær

Verður Áslaug Arna næsti formaður Sjálfstæðisflokksins?

Verður Áslaug Arna næsti formaður Sjálfstæðisflokksins?
Fréttir
Í gær

Læti í Loðmundarfirði vegna friðlýsingar – „Það eru persónulegar erjur manna á milli“

Læti í Loðmundarfirði vegna friðlýsingar – „Það eru persónulegar erjur manna á milli“
Fréttir
Í gær

Rútuslys á Hellisheiði

Rútuslys á Hellisheiði
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Móðir keypti pennaveski fyrir dætur sínar á Shein – Dauðbrá þegar hún sá hvað var í því

Móðir keypti pennaveski fyrir dætur sínar á Shein – Dauðbrá þegar hún sá hvað var í því
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tálbeituhópurinn: Maður á Akranesi þungt haldinn eftir misþyrmingar með járnkylfum og hnífi

Tálbeituhópurinn: Maður á Akranesi þungt haldinn eftir misþyrmingar með járnkylfum og hnífi