fbpx
Föstudagur 18.október 2024
Fréttir

Hildur orðlaus yfir viðbrögðunum

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Föstudaginn 23. mars 2018 17:36

Hildur vill trúa að Sigríður Andersen breyti kerfinu

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigríður Andersen dómsmálaráðherra hitti á dögunum Þorstein Vilhelmsson, föður Hildar Þorsteinsdóttur. Hildur sagði í samtali við DV að hún hefði mátt þola skelfilegt, andlegt, líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi af hálfu Magnúsar Jónssonar, sem oft er kenndur við Atorku. Í viðtalinu kom fram að þrátt fyrir að hafa slitið sambandinu fyrir þremur árum er ekki enn búið að skipta eignum og sagði hún Magnús hafa tafið málið í þrjú með aðstoð lögfræðinga. Kerfið hefur brotið á Hildi og fleiri konur hafa verið í svipuðum sporum. Hildur kveðst hafa stigið fram til að segja sögu sína til að vekja athygli á þessu óréttlæti. Hildur segir:

„Ég er algjörlega orðlaus yfir öllum viðbrögðunum sem ég hef fengið síðan greinin um mig birtist í DV. Ég vona innilega að saga mín hafi gefið einhverjum konum styrk. Styrk til að stíga út úr ofbeldissambandi, styrk til að segja frá og fá þá hjálp sem þær eiga skilið. Ég vona að kerfið ranki við sér og það strax. Hjálpi þolendum svo að þeir þurfi ekki að hefja nýja baráttu þegar þeir loksins öðlast styrkinn og hugrekkið til að fara.“

Þorsteinn kveðst treysta því að Sigríður Andersen láti nú til sín taka og að breyting verði á kerfinu með hagsmuni kvenna í huga enda um lífsspursmál að ræða.

Hildur kveðst þakkláti Sigríði að taka á móti föður hennar. „Ég veit að hún er öll af vilja gerð til að breyta kerfinu. Það mun taka tíma. Ég vona samt að í framtíðinni muni þolendur heimilisofbeldis fá alla þá aðstoð sem þeim ber og að kerfið muni ekki bregðast fleiri einstaklingum. Ég trúi því að réttlætið muni sigra að lokum.“

Heimildir nýttar betur

Dómsmálaráðherra hitti föður Hildar.

Sigríður Andersen dómsmálaráðherra vildi ekki tjá sig við DV um einstaka mál en vildi minna á að það taki tíma að breyta kerfinu. Laga- og verklagsbreytingar gerist ekki á einni nóttu en þróunin virðist vera í réttum farvegi að hennar mati.

„Það eru samt mjög miklar breytingar sem hafa átt sér stað á undanförnum misserum. Um áramótin 2014/2015 breyttist verklagið hjá lögreglunni í heimilisofbeldismálum mikið, heimildir eru nýttar miklu betur og mér skilst að áhættumat sé gert í hverju máli og skoðað hvort nálgunarbann sé úrræði sem þurfi að beita eða hvort neyðarhnappur sé hentugri. Þannig að þetta er mikið að breytast.

Það virðist vera svo að dómstólar séu oftar að fallast á kröfur um nálgunarbann og mér skilst það frá ákærusviði lögreglunnar að það hafi orðið töluverð breyting frá því sem áður var,“ segir dómsmálaráðherra. Það skal þó tekið fram að lögregla útvegaði Hildi neyðarhnapp en dómstólar neituðu henni um nálgunarbann. Verður það að teljast nokkuð óvenjulegt, þá einnig í ljósi þess að önnur kona sem Magnús hóf samband við eftir að Hildur sleit sambandinu fékk nálgunarbann. „Það er þannig, að það er orðið mun algengara að fallist er á kröfu um nálgunarbann. Það er dæmi um breytingar sem hafa átt sér stað á síðustu árum, eða í raun bara síðustu misserum.

Svo er vert að minnast á Bjarkarhlíð sem við opnuðum á síðasta ári sem er miðstöð fyrir
þolendur ofbeldis. Það er tilraunaverkefni sem virðist hafa reynst mjög vel. En þessi málaflokkur er í miklum forgangi, bæði hjá mér sem ráðherra í ráðuneytinu og hjá lögreglunni,“ bætir Sigríður Andersen við að lokum.

Hvað er Bjarkarhlíð:

Bjarkarhlíð er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis. Markmið Bjarkarhlíðar er að veita stuðning og ráðgjöf ásamt fræðslu og umfjöllun um eðli og afleiðingar ofbeldis, auk þess að gefa skýr skilaboð um að ofbeldi verði ekki liðið. Hjá Bjarkarhlíð er unnið með þolendum ofbeldis á þeirra forsendum og er öll þjónustan undir sama þaki til að auðvelda þeim að leita aðstoðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Kennarar í MR fara í verkfall 11. nóvember

Kennarar í MR fara í verkfall 11. nóvember
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Kristján Berg segir borgina halda fyrirtæki sínu í gíslingu – „Núna er ég kominn með nóg“

Kristján Berg segir borgina halda fyrirtæki sínu í gíslingu – „Núna er ég kominn með nóg“
Fréttir
Í gær

Hannes Hólmsteinn og Gunnar Smári í hár saman: „Ljúgandi á daginn og grenjandi á kvöldin“

Hannes Hólmsteinn og Gunnar Smári í hár saman: „Ljúgandi á daginn og grenjandi á kvöldin“
Fréttir
Í gær

Sigríður Margrét lýsir miklum vonbrigðum:  „Hvar er kröfugerðin?“

Sigríður Margrét lýsir miklum vonbrigðum:  „Hvar er kröfugerðin?“
Fréttir
Í gær

Bandarísk stjórnvöld veita Ísrael viðvörun

Bandarísk stjórnvöld veita Ísrael viðvörun
Fréttir
Í gær

Stefnir í risahækkun á nikótínvörum – Fjármálaráðherra boðar sérstakt gjald

Stefnir í risahækkun á nikótínvörum – Fjármálaráðherra boðar sérstakt gjald