Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður Vísis, mætti í útvarpsþáttinn Bítið á Bylgjunni og ræddi þar meðal annars um einkennilegt mál sem kom upp í vikunni, það er þegar forseti borgarstjórnar eyddi færslu á Twitter eftir athugasemd frá Eddu Falak, þjálfara, áhrifavaldi og hlaðvarpsstjórnanda.
„Við höfum farið yfir það áður, það er með þennan Twitter-skríl. Twitter er náttúrúlega holræsi internetsins og þar eru menn í endalausri herpingslegri brandarakeppni og dyggðarskreytingu, þetta er ekki eins gott fólk og það vill gefa sig út fyrir að vera því þarna ríkir mikil refsigleði og læti,“ segir Jakob í upphafi umræðunnar um málið.
Málið snýst um Alexöndru Briem, forseta borgarstjórnar, og færslu sem hún birti á Twitter-síðu sinni. Í færslunni segir Alexandra frá því að hún hafi gert sér ferð til að sjá kvikmyndina Leynilögga og að hún hafi verið ánægð með myndina. „Þar segist hún hafa verið með talsvert miklar væntingar en hún hafi bara farið fram úr væntingum, þetta hafi verið bráðskemmtilegt,“ segir Jakob og útskýrir svo hvað gerðist.
„Hún er varla búin að sleppa orðinu og þá kemur Edda Falak. Sem fer nú fyrir aktivistunum þarna á Twitter og spyr bara mjög merkingaþrungið: „Er þetta brandari“ og það líður ekki á löngu þá er Alexandra, forseti borgarstjórnar, búin að taka tweetið út,“
Einn þáttastjórnandi Bítisins spyr Jakob þá hvernig stendur á þessu. „Ha? Hva, af hverju mátti hún ekki setja þetta inn?“ spyr þáttastjórnandinn. „Ég hef haldið því fram að allar stofnanir samfélagsins séu meira og minna á hnjánum gagnvart þessu,“ segir Jakob við því.
Þá er sagt að Alexandra hafi eytt færslunni eftir athugasemdina af ótta við að „lenda í hakkavélinni“ fyrir að segja að myndin hafi verið góð. „Það tengist þá því að í myndinni eru einhverjir menn sem hafa verið sakaðir um að hafa beitt kynferðislegu ofbeldi. Ég var nú eitthvað að fara yfir þetta, ég átta mig ekki alveg á því, það er stór hópur sem kemur að þessari mynd, ég er ekki búinn að sjá hana,“ segir Jakob þá og heldur áfram.
„Væntanlega er þetta hann Egill Einarsson, leikfimikennari úr Kópavogi. Hans mál, sem ég hélt að væri bara búið að afgreiða, hann var kærður, málinu var vísað frá. Þegar málum er vísað frá þá þýðir það að búið er að rannsaka málið og að það séu engar líkur á því að til sakfellingar komi. En málið er þá ekkert búið þar, ekki á Twitter.“
Þegar Jakob varð var við þetta í vikunni ákvað hann að heyra í Alexöndru vegna málsins. „Ég hringdi í Alexöndru, ég reyndar skrifaði ekki þá frétt, en ég var að spyrja um þetta dularfulla hvarf á tístinu. Henni var nú illa staðfest við það, hún hafði látið þetta hverfa, en hún vildi nú ekki mikið tjá sig um þetta, hún var nú reyndar á einhverjum fjarfundi þegar ég náði á hana. Hún sagðist hafa hugsað sig betur um og bara viljað sleppa þessu. Hún var á því að þeir sem búa til svona mynd, þeir megi alveg finna fyrir því ef þar eru einhverjar umdeildar persónur.“
Að lokum segir hann að þetta mál staðfesti það sem margir hafa sagt. „Menn eru svo hræddir við þennan hóp að menn hafa ekki einu sinni þorað að leggja í skoðanakannanir til að kanna það hvort fólk vilji yfirleitt hafa eitthvað með þetta að gera, þessa kvenhyggju. En allt kerfið er undirlagt og þetta staðfestir það að stjórnvöld, pólitíkusar, eru algjörlega undir hælnum á þessum hópi og þeir þora sig ekki að hræra.“