Belgísk yfirvöld segja að aðgerðin hafi verið söguleg því upp hafi komist um nýja undirheima í Brussel. Rúmlega eitt þúsund lögreglumenn tóku þátt í aðgerðinni.
Lögreglan segir að hinir handteknu tengist skipulögðum glæpasamtökum sem teygja anga sína til Albaníu og Kólumbíu og víðar um heiminn. „Í dag höfum við afhjúpað nýja undirheima í Brussel,“ sagði Eric Jacobs, yfirmaður ríkislögreglunnar, á fréttamannafundi þegar aðgerðunum var lokið. Hann sagði að um skipulögð glæpasamtök væri að ræða sem séu talin standa umfangsmikil viðskipti með kókaín sem sé flutt frá Suður-Ameríku til Evrópu.
Lögreglan sagði að aðgerðin og árangur hennar væri mjög mikilvægur liður í baráttunni gegn innflutningi og dreifingu fíkniefna í Evrópu. Jacobs sagði að samtökin hefðu haft mikið fé umleikis og að þau hefðu nýtt sér handlangara, hótað fólki, beitt ofbeldi og jafnvel myrt fólk til að ná markmiði sínu.
Lögreglan undirbjó aðgerðir sínar í 1.300 daga með því að fylgjast með smygli samtakanna á kókaíni til Evrópu með einkaflugvélum og í gámum frá Suður-Ameríku.
Í aðgerðunum fann lögreglan sex framleiðslustaði fíkniefna í Brussel og lagði hald á mörg tonn af efnum sem eru notuð til að þynna kókaín áður en það er sett í dreifingu. Að auki var lagt hald á fjölda skotvopna og 57 bíla, þar af marga dýra lúxusbíla. Einnig var lagt hald á mikið magn gullmynta, um eina milljón evra í reiðufé, mikið magn af tóbaki, dróna og útbúnað fyrir kafara.
Skipulögð glæpasamtök hafa árum saman verið mikið vandamál í Belgíu þar sem höfnin í Antwerpen er oft vettvangur smygls. Á mánudaginn voru tíu manns handteknir í Antwerpen, grunaðir um að hafa lagt skipulögðum glæpasamtökum og fíkniefnasmyglurum lið. Sex þeirra störfuðu á hafnarsvæðinu í Antwerpen. Í síðustu viku voru 27 handteknir í Liége í aðgerð sem beindist gegn skipulögðum glæpasamtökum.
Aðgerðin á þriðjudaginn er hluti af svokallaðri Operation Sky sem hófst fyrr á árinu eftir að belgískum lögreglumönnum tókst að ráða dulkóðun á samskiptaforriti sem glæpamenn nota. Í kjölfarið komst lögreglan yfir einn milljarð skilaboða sem höfðu farið á milli glæpamanna. Það er rannsókn á þessum skilaboðum sem lagði grunnin að aðgerðunum á þriðjudaginn.
Það sem af er ári hafa belgísk yfirvöld lagt hald á 77 tonn af kókaíni en söluverðmæti þess er sem svarar til um 600 milljarða íslenskra króna.