Kjötsúpudeginum var fagnað í 18. sinn á laugardaginn á Skólavörðustíg, en fögnuðurinn er einn af fyrstu sjálfsprottnu hátíðum miðbæjarins sem á rætur að rekja til þess þegar Ófeigur Björnsson í Gullsmiðju Ófeigs og Jóhann Jónsson í Ostabúðinni leiddu saman hesta sína til að gera daginn á veruleika og vekja með því athygli á Skólavörðustíg og þeirri verslun og þjónustu sem þar er boðið upp á.
Þá var ákveðið að halda hátíðina á fyrsta vetrardeginum þar sem móðir Ófeigs hafði alltaf gert kjötsúpu þann dag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Bændasamtökum Íslands. Þar kemur fram að Kjötsúpudagurinn í ár hafi verið líflegur.
„Óhætt er að segja að líf og fjör hafi verið síðastliðinn laugardag á Skólavörðustíg þegar fyrsta vetrardegi var fagnað og veitinga- og verslunarmenn ásamt bændum buðu upp á sjö kjötsúpustöðvar um allan stíginn þar sem hver og einn hafði sína útgáfu af þjóðarrétti Íslendinga.“
Áætlað er að um 5 þúsund fjölbreyttir kjötsúpuskammtar hafi runnið ofan í gesti og gangandi.
„Við erum í skýjunum með þennan dag og viðtökurnar sem við fengum á öllum súpustöðvunum. Það var mikið þakklæti hjá Íslendingum og erlendu ferðamönnunum sem áttu leið hjá og nú sem fyrr kláruðust allir súpuskammtarnir töluvert fyrir auglýstan lokunartíma svo fólk kann vel að meta þetta framtak. Örlítill rigningarskúr sem kom á tímabili virtist ekki hafa mikil áhrif og var almenn ánægja með fjölbreytni á kjötsúpustöðvunum þar sem þjóðarrétti Íslendinga var gert hátt undir höfði,“ segir Gústav Axel Gunnlaugsson veitingamaður á Sjávargrillinu í tilkynningu.
„Við hvetjum auðvitað Íslendinga til að elda kjötsúpu heima á næstunni í öllum þeim útgáfum sem leynast í eldhúsum landsmanna, og fólk haldi þessari hefð okkar á lofti um ókomin ár. Matarmenningin okkar er auðlind sem við þurfum að hlúa að og kynna fyrir ungu fólki og erlendum gestum.“ Segir Hafliði Halldórsson verkefnastjóri hjá Bændasamtökum Íslands.