Trommarinn Travis Barker lét hylja húðflúr með nafni fyrrverandi eiginkonu sinnar, Shönnu Moakler. Hann setti mynd af sporðdreka yfir nafn hennar og útlínur af vörum unnustu sinnar, Kourtney Kardashian.
View this post on Instagram
Travis og Kourtney trúlofuðust í síðustu viku eftir tæplega árs samband. Sambandi þeirra hefur fylgt nokkuð drama. Kourtney og Travis eiga bæði börn úr fyrra sambandi. Kourtney á þrjú börn með fyrrverandi eiginmanni sínum Scott Disick. Travis á tvö börn með fyrrverandi eiginkonu sinni Shanna Moakler. Shanna og Travis voru gift á árunum 2004 til 2006.
Bæði Shanna og Scott virðast vera ósátt með sambandið. Shanna hefur látið í sér heyra og kallað hegðun parsins furðulega.
Sjá einnig: Nýja kærastan og fyrrverandi eiginkonan fara í hart á Instagram
Það virðist ekki hafa farið framhjá Shönnu að Travis lét hylja nafn hennar. Hann var með hjarta og nafn hennar í hjartanu á upphandleggnum. Hann lét setja sporðdreka og við hliðina á sporðdrekanum voru útlínur af vörum Kourtney Kardashian. Travis er sporðdreki í stjörnumerki.
Shanna virðist tjá sig óbeint um málið í færslu í Instagram Story. People greinir frá.
Shanna birti skjáskot úr hrollvekjunni Point of No Return, sem kom út 1993, ásamt setningu úr myndinni: „I never did mind about the little things“ og tjákni af vörum, sem aðdáendur og nokkrir fjölmiðlar vestanhafs taka sem tilvísun í varir Kourtney sem Travis lét merkja sig með.
Þetta er ekki fyrsta tattúið sem Travis fær sér fyrir Kourtney. Hann lét húðflúra nafn hennar fyrir ofan vinstri geirvörtu sína og mánuði seinna leyfði hann Kourtney sjálfri að húðflúra „ég elska þig“ á handlegg hans.
View this post on Instagram