ATH: Telma Líf er fundin, heil á húfi
Átján ára gömul stúlka, Telma Líf Ingadóttir, gekk út af Villajosa sjúkrahúsinu í Alicante-héraði á Spáni kl. 5:30 í morgun og ekkert hefur heyrst eða spurst til hennar síðan. Hún býr ásamt foreldrum sínum í bænum Callosa de Ensarriá. Bærinn er í um 50 km fjarlægð frá borginni Alicante.
Foreldrar stúlkunnar, Ingi Karl Sigríðarson og Guðbjörg Gunnlaugsdóttir, eru sem von er í öngum sínum yfir hvarfi stúlkunnar. Ingi ræddi við DV:
„Ef einhver sér hana, ef einhver sér einhverja sem líkist henni, hafið samband við Policia Locale eða Guardia Civil sem allra fyrst, þeir vísa henni strax til mín. Þetta er óeðlilegt og hún skildi eftir meðal annars mjólk og öll skilríki og símann sinn á sjúkrahúsinu og það var miði með símanúmerinu mínu og símanúmeri móður hennar í töskunni þar sem allt dótið hennar er. Þannig náði sjúkrahúsið að hafa sambandi við okkur.“
Eins og Ingi greinir frá fór stúlkan út án þess að taka með sér skilríki og peninga.
DV hafði samband við Sveinn Guðmarsson, upplýsingafulltrúa utanríkisráðuneytisins, hafði hann ekki heyrt um málið en setti sig inn í það þegar í stað og er málið nú komið inn á borð utanríkisþjónustunnar.
Spænska lögreglan leitar stúlkunnar og er með mynd af henni. Mikilvægt er að fólk deili sem víðast færslu um hvarf Telmu Lífar sem er hér undir fréttinni. Færslan er á íslensku, ensku og spænsku. Íslenski textinn er svohljóðandi:
„Hún Telma Líf er tynd. Sást sídast Ganga út af Villajosa spítala á Spáni kl 5:30 um morguninn 26. Okt. Allir á Spáni hafid augun opin fyrir stelpunni okkar, hún hefur engan síma eda skilríki, hún gæti verid í losti!! Deilid sem vídast!! Lögreglan er med mynd og er ad leita!“