fbpx
Miðvikudagur 25.desember 2024
Fókus

„Dagurinn sem ég næstum því dó var í raun dagurinn sem ég lifnaði við“

Fókus
Sunnudaginn 24. október 2021 09:00

Gísli Hvanndal Jakobsson. Aðsend mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gísli Hvanndal Jakobsson er 36 ára tveggja barna faðir. Hann skrifar:

23. apríl síðastliðinn fékk ég mjög alvarlegt flog og endaði í öndunarvél í fjóra daga. Í þessu flogi brotnuðu báðir upphandleggir. Hægri öxlin brotnaði mjög illa og ég er með tvær stálplötur á hægri öxlinni og 6 eða 7 skrúfur í upphandlegg.

Annað lungað á mér féll saman og ég fékk lungnabólgu. Neðsti hryggjaliðurinn féll niður og nokkrir brotnuðu og brákuðust. Ég fékk garnaflækju og hluti af þörmunum voru teknir. Minnið mitt skertist því ég man ekki dagana á undan floginu né næstu 10 daga á sjúkrahúsinu.

Ég var í 5 vikur á sjúkrahúsi. Foreldrum mínum var sagt að ég væri í mikilli lífshættu og þau ættu að búa sig undir það að ég myndi ekki hafa það af. En ég var mjög heppinn því augljóslega lifði ég af þar sem ég er að skrifa þessa grein.

Vikurnar liðu og ég fór að hugsa um dauðann og óttann í lífinu. Ég áttaði mig á því að dauðinn er ekkert merkilegur og í raun ekkert til að óttast. Að næstum því að deyja er bara eins og að slökkva ljósin í herberginu áður en maður fer að sofa. Ég áttaði mig á því að alheimurinn hafði gefið mér mikla og verðmæta gjöf. Alheimurinn tók frá mér óttann við að deyja.

Gísli Hvanndal Jakobsson. Aðsend mynd.

Ég áttaði mig á því að lifa er hin raunverulega áskorun og að lifa vel. Ég er 36 ára og á tvö börn sem hafa kennt mér hvað skilyrðislaus ást er. Þau hafa kennt mér hvað gleði er og hvað væntumþykja er. Þau hafa kennt mér að taka lífinu ekki of alvarlega og að njóta hvers einasta dags eins og hann væri minn síðasti.

Flogið sem næstum því drap mig gaf mér frið og þakklæti. Í dag tek ég engu sem sjálfgefnu og hlakka til einasta dags eins og barn á jólunum sem bíður eftir að sjá hvað er í pakkanum. Hver einasti dagur er dýrmætur og maður veit aldrei hvað maður fær. Hver einasti dagur kemur á óvart. Hvern hitti ég í dag? Hvernig verða samræðurnar? Mun ég hlægja mikið? Mun eitthvað erfitt eiga sér stað? Hvaða ævintýri upplifi ég í dag? Það sem mér hefur verið gefið er óttaleysi, frelsi og friður frá almættinu.

Mér hefur líka verið gefin þekking og þá visku að ég er summa alls þess sem ég hef farið í gegnum. Að frá fæðingu hefur lífið mótað mig eins og leir í þann mann sem ég er í dag. Lífið hefur kennt mér þakklæti og æðruleysi. Lífið er ekki bara eintóm gleði. Lífið er bæði erfitt og auðvelt. Lífið er bæði þjáning og sæla. Ég hef fengið þann skilning að lífið er fullt af andstæðum og að það eru erfiðu kaflarnir sem gefa mér á endanum góðu kaflana.

Ég myndi ekki vita né skilja hvað gleði og sæla er án þess að fara í gegnum þjáningu. Ég myndi ekki vita né skilja hvað er upp ef ég vissi ekki hvað niður er. Yin og Yang haldast í hendur. Lífið er bæði svart og hvítt og það er allt í lagi. Þessar andstæður gefa okkur það sem við köllum líf eða hlutveruleika.

Ég er ekki lengur hræddur við dauðann. Flogið gaf mér gjöf fulla af djúpum skilningi, þekkingu og visku. Flogið gaf mér kærleika, gleði og skýrleika. Flogið gaf mér sálarfrið. En ég er alls ekki fullkominn. Í gegnum lífið hef ég verið með sterka réttlætiskennd og orðið bitur, sár og reiður gagnvart fólki sem mér finnst hafa gert mér rangt til og jafnvel beitt mig ofbeldi. Og ég hef sjálfur sært aðra þó ég hafi ekki gert það viljandi eða með beinum ásetningi. En þessi sterka réttlætiskennd mín hefur eyðilagt margt í mínu lífi.

Gísli Hvanndal Jakobsson. Aðsend mynd.

En sú líðan er að hverfa smátt og smátt. Ég er að þroskast og mun vera að þroskast allt mitt líf. Ég mun gera mistök  það er víst. En þannig á það að vera. Lífið er ferð og á veginum hittum við fullt af fólki af öllum stærðum og gerðum og þurfum að takast á við ýmis verkefni. Ég er eilífa stúdent að læra. Ég stefni að eigin ágæti hvern einasta dag. Að verða betri í dag en í gær.

Ég hef gert fullt af mistökum í lífinu og hef fyrirgefið sjálfum mér fyrir þau því ég einfaldlega vissi ekki og gat ekki betur miðað við þann þroska og þekkingu sem ég hafði. En nú er ég þroskaðri og vitrari en ég var í gær. Ég hefði ekki getað skrifað þessa grein í gær.

Flogið gaf mér líka þá þekkingu að það er líf eftir þetta líf og að það er til fortilvera. Flogið gaf mér frið og að kunna að meta það sem ég er og hef hvern einasta dag. Flogið gaf mér andlega visku og æðruleysi. Flogið gaf mér fyrirgefningu og það að sætta mig við það sem ég get ekki breytt. Flogið gaf mér líka ábyrgð. Að héðan í frá er ég meira vakandi í lífinu og að það er ég sem tek ábyrgð á sjálfum mér og hverri einustu ákvörðun og gjörð sem ég tek í lífinu. Flogið gaf mér ný viðhorf , heilbrigði viðhorf, andleg viðhorf.

Dagurinn sem ég næstum því dó var í raun dagurinn sem ég lifnaði við. Dagurinn sem ég næstum því dó var dagurinn sem ég steig út úr myrkrinu í ljósið. Dagurinn sem ég næstum því dó er dagurinn sem hið nýja líf mitt byrjaði. Dagurinn sem ég næstum því dó voru kaflaskil og hefur dregið mig inn á svið nýrra ævintýra. Dagurinn sem ég næstum því dó gaf mér allt. Dagurinn sem ég næstum því dó gaf mér þá gjöf að opna hjarta mitt meira og meira. Dagurinn sem ég næstum því dó sýndi mér og gaf mér nýjan andlegan veruleika og þá fullvissu að til er andlegur kærleikur og væntumþykja sem við getum öll eignast og upplifað. Dagurinn sem ég næstum því dó gaf mér gleði og hjarta barnsins sem börnin mín hafa kennt mér smátt og smátt hvern einasta dag.  Ég gerði mistök í gær en ég lærði af þeim í dag. Takk fyrir að lesa.

 

Þú getur lesið fleiri pistla eftir Gísla hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Gunnar Máni og fjölskylda misstu heimili sitt í Grindavík – Hálfu ári síðar missti hann vinnuna vegna eldsvoðans í Kringlunni

Gunnar Máni og fjölskylda misstu heimili sitt í Grindavík – Hálfu ári síðar missti hann vinnuna vegna eldsvoðans í Kringlunni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Blake Lively kærir Baldoni fyrir kynferðislega áreitni á tökustað – Vildi ekki fleiri kynlífsatriði

Blake Lively kærir Baldoni fyrir kynferðislega áreitni á tökustað – Vildi ekki fleiri kynlífsatriði
Fókus
Fyrir 5 dögum

Kolbrún syrgir bróður sinn

Kolbrún syrgir bróður sinn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Dennis Rodman með yfirlýsingu eftir að dóttir hans varpaði sprengju

Dennis Rodman með yfirlýsingu eftir að dóttir hans varpaði sprengju
Fókus
Fyrir 5 dögum

Kristín og Árni nýtt stjörnupar

Kristín og Árni nýtt stjörnupar
Fókus
Fyrir 5 dögum

Unnur birti tvær myndir – Önnur tekin fyrir ári síðan og sýnir ótrúlegan mun

Unnur birti tvær myndir – Önnur tekin fyrir ári síðan og sýnir ótrúlegan mun