Jóhannes fer ekki tómhentur heim en auk heiðursins fær hann eina milljón í sænskum krónum í verðlaunafé, það jafngildir tæpum 15 milljónum í íslenskum krónum.
Á hverju ári er valið sérstakt þema fyrir verðlaunin. Emma Dalväg, formaður dómnefndarinnar, útskýrði að spilling hafi orðið fyrir valinu í ár, hún segir spillingu vera eina stærsta hindrunina í sjálfbærni. „Hvað er það sem stöðvar og stendur í vegi fyrir allri viðleitni okkar? Niðurstaða okkar varð sú að spilling er ein stærsta hindrunin fyrir þeirri þróun sem við viljum sjá.“
Jóhannes þakkaði fyrir verðlaunin á athöfninni og sagði að þau skipti hann sérstaklega miklu máli í baráttunni gegn óréttlæti. „Og ekki aðeins mig því að baki mér stendur heilt þorp og hefur gert í fimm ár. Og sem betur fer þá stækkar þorpið bara og nú í kvöld held ég að það verði mun stærra.“
Í viðtali við RÚV segir Jóhannes að verðlaunin séu viðurkenning fyrir allra uppljóstrara og að þetta sé „stór og mikil þýðing fyrir baráttuna til að klára Samherjaskjalamálið“.
Þá segist Jóhannes hafa trú á rannsókninni sem nú er í gangi hjá Héraðssaksóknara. Þá talaði hann einnig um rannsóknina sem fer fram í Namibíu, hann segir að hugsanlega verði réttarhöld á næsta ári og að hann muni þar bera vitni.
Jóhannes segir þá að það þurfi að sakfella Samherjamenn hér á landi, jafnvel þó það þýði að hann verði sjálfur sakfelldur. „Það þarf náttúrulega til sakfellingar á Samherjamönnum á Íslandi og ég meina ef það leiðir til sakfellingar á mér þá er það bara hluti af því. Það er ekkert mál af minni hálfu. Þeir þurfa að borga allt til baka sem þeir tóku frá Namibíu.“