Stjórn Sorpu ákvað á síðasta stjórnarfundi sínum að ganga til samninga við Björn H. Halldórsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Morgunblaðið greinir frá. Björn var rekinn úr starfi sínu hjá Sorpu í febrúar síðastliðinn í kjölfar svartrar skýrslu um stjórnarhætti og áætlanagerð vegna gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi en þar voru gerðar alvarlegar athugasemdir við störf Björns, sérstaklega varðandi upplýsingagjöf til stjórnar og gerð kostnaðaráætlunar vegna verkefnisins.
Upphaflegur kostnaður við GAJA-verkefnið nam um 3,7 milljörðum króna en sá kostnaður hefur farið úr böndunum og stendur nú í rúmum 6,1 milljarði króna. Þá er fyrirséð að kostnaðurinn mun enn aukast. Verksmiðjunni var lokað fyrr í sumar vegna þess að myglugró fundust í límtréseiningum í þaki og burðarvirki versmiðjunnar. Kostnaður við lagfæringar verður ærinn og talið er að starfsemi verksmiðjunnar geti legið niðri í heilt ár. Nýlega var síðan greint frá því að starfsleyfi verksmiðjunnar væri í uppnámi í ljósi þess að aðeins lífrænn úrgangur mætti fara inn í verksmiðjuna en sá úrgangur sem hefur verið notaður hingað til er aðeins 70% lífrænn. Forsendur starfseminnar virðast því brostnar.
Eins og áður segir var fyrrum framkvæmdastjóri Sorpu gerður að einskonar blóraböggli fyrir klúðrinu í áðurnefndri skýrslu og síðan með brottvikningunni. Hann brást við með því að fara í mál við fyrirtækið og fara fram á 167 milljónir króna í miskabætur.
Í fyrrnefndri frétt Morgunblaðsins kemur fram að á síðasta stjórnarfundi hafi verið lagt fram minnisblað um málið gegn Birni og í kjölfarið hafi verið ákveðið að ganga til samninga við hann. Mun framkvæmdastjórinn fyrrverandi fá sex mánaða laun greidd til viðbótar við sex mánaða uppsagnarfrest sem hann hafði áður fengið greiddan. Þá greiðir Sorpa lögfræðikostnað Björns sem nemur 1,5 milljón króna.
„Ég held að það sé best fyrir alla að þetta sé frágengið og við getum farið að snúa okkur að uppbyggingunni,“ segir Líf Magneudóttir, formaður stjórnar Sorpu, í samtali við Morgunblaðið.