„Dásamlegt að sjá að Colin Powell, sem gerði stór mistök í Írak og með hin svokölluðu gjöreyðingarvopn, fái svo fallega meðferð hjá falsfjölmiðlunum. Vona að það sama gerist hjá mér dag einn. Hann var klassískur RINO (aðeins Repúblikani að nafninu til, innsk. blaðamanns) ef hann var það þá yfirhöfuð því hann var alltaf fyrstur til að ráðast á aðra Repúblikana. Hann gerði mörg mistök en leyfum honum samt sem áður að hvíla í friði,“ skrifaði Trump á heimasíðu sína.
Ummæli hans hafa vakið mikla athygli í Bandaríkjunum. Í sjálfu sér ekki ummælin sjálf, því vitað var að Trump og Powell var ekki vel til vina, heldur tímasetning þeirra, aðeins degi eftir að Powell lést.
Trump gat ekki fyrirgefið Powell að hann studdi Joe Biden í forsetakosningunum á síðasta ári og hann gagnrýndi einnig viðbrögð Trump við árás stuðningsmanna hans á þinghúsið.
Stjórnmálaskýrendur hafa bent á að árásin á Powell degi eftir andlát hans segi mikið um stöðu Trump þessa dagana. Einn þeirra, Jeff Shafer hjá Politico, telur að ummælin um fjölmiðla og Powell geti reynst Trump dýrkeypt.
Hann bendir á að Trump nái ekki lengur augum og eyrum milljóna stuðningsmanna sinna á Twitter þar sem hann hefur verið útilokaður. Hann fær ekki lengur aðgang að besta útsendingartíma hjá Fox News. Hann er heldur ekki lengur með stórt flokksbatterí á bak við sig til að koma boðskap hans á framfæri.
Shafer segir að Trump sé ekki eins áhugaverður og áður og sé hægt og rólega að hverfa úr fréttastrauminum. Fram hefur komið að hann nái ekki til nærri því eins margra í gegnum heimasíðu sína og hann gerði með tístum sínum á Twitter. Shafer telur því að Trump telji sig verða að ganga enn lengra en áður til að fá athygli en það getur reynst honum dýrkeypt.
„Ókostirnir fyrir Trump – ef ókostir eru til í heimi Trump – eru að á meðan hann sekkur sífellt lægra í tilraunum sínum til að komast í fréttirnar endar hann með að senda það sem er eins og prufuupptaka til samfélagsmiðlanna, sem hafa úthýst honum, sem minnir þá á að leyfa honum ekki að koma aftur,“ skrifaði Shafer í Politico.
Hann sagði að endurkoma Trump á samfélagsmiðla sé grundvöllurinn fyrir endurkomu hans inn á pólitíska sviðið en þessi möguleiki verði sífellt minni eftir því sem Trump gangi sífellt lengra til að vekja athygli á sér.