Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar hafa borist tilkynningar um að nú séu 38 grunnskólanemendur með staðfest Covid-smit. Þar af eru 28 barnanna í Háteigsskóla, 4 í Seljaskóla en aðrir eru stakir nemendur í öðrum grunnskólum í Reykjavík. Þrír starfsmenn Háteigsskóla eru með staðfest smit.
Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn DV til skóla- og frístundasviðs um smit í leik- og grunnskólum borgarinnar. Engar tilkynningar um börn eða starfsfólk leikskóla hafa borist þessa vikuna, hvorki vegna sóttkvíar né smitgátar.
Samkvæmt öruggum heimildum DV er einn þeirra starfsmanna við Háteigsskóla sem nú er með Covid óbólusettur. Arndís Steinþórsdóttir, skólastjóri Háteigsskóla, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Spurð um vinnureglur þegar kemur að óbólusettu starfsfólki skóla vísaði hún á Helga Grímsson, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs. Ekki náðist í Helga við vinnslu fréttarinnar.
220 grunnskólanemar í Reykjavík eru í sóttkví, samkvæmt því sem best er vitað. Segir í svari frá skóla- og frístundasviði að allmargir séu að fara í sýnatöku þessa dagana og þessi fjöldi breytist því nokkuð hratt.
Ekki liggja fyrir staðfestar tölur hjá Reykjavíkurborg um fjölda nemenda eða starfsmanna í smitgát þar sem útsetningardagur fyrir smiti er mismunandi eftir aðstæðum hverju sinni.
Fréttablaðið greindi frá því í morgun að þrír árgangar í Háteigsskóla væru í sóttkví.
Arndís Steinþórsdóttir sagði þá í samtali við Fréttablaðið að þetta væru nemendur í fjórða, fimmta og sjötta bekk. Þá væru nemendur í fjórða og sjötta bekk að koma úr sóttkví í þessari viku en fimmti bekkur yrði væntanlega í sóttkví fram yfir vetrarfrí sem hefst á föstudag og er ekki aftur skóli fyrr en á miðvikudag hjá börnum í Reykjavík.
Þá ræddi Fréttablaðið við Helga Grímsson sem sagði mikið áhyggjuefni að stærsti hluti landsmanna í einangrun séu börn á aldrinum sex til tólf ára. Þá nefnir hann að frá septembermánuði hafi sjö sinnum verið farið í smitrakningu í Norðlingaskóla og mörg börn þar ítrekað þurft að fara í sóttkví.