fbpx
Sunnudagur 19.janúar 2025
Fréttir

Keyptu „notaðar“ nærbuxur og myndir af íslenskum grunnskólastelpum – „Þessir menn, það er eitthvað að þeim“

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 19. október 2021 09:41

Ásdís og Alexandra - Skjáskot: Kveikur/RÚV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í þættinum Kveik á RÚV í kvöld verður fjallað um stafræna áreitni. Meðal viðmælanda í þættinum eru tvær vinkonur sem ganga í grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu en þær koma fram undir dulnöfnunum Ásdís og Alexandra. Þær segja frá því í þættinum að í fyrra hafi þær frétt af því að stelpur í skólanum þeirra höfðu hitt mann sem vildi kaupa af þeim notaðar nærbuxur.

Ásdís ákvað að taka þátt í því að selja notuðu nærbuxurnar og í kjölfarið fóru alls konar menn að fylgja henni og Alexöndru á samfélagsmiðlum. Mennirnir fóru að biðja um kynferðislegar myndir og buðust stundum til þess að greiða fyrir þær. Ásdís segir að til að byrja með hafi hún bara sent myndir sem hún fann á netinu en ekki af sér sjálfri.

„En ég sendi svona nokkrum sinnum af mér. En ég sendi aldrei svona grófar. Bara svona flex, eins og það er kallað,“ segir Ásdís en með „flex“ er átt við að myndirnar sýni ekki fulla nekt. „Stundum vilja þeir bara að maður troði fætinum sínum upp í sig,“ segir Alexandra og tekur fram að mennirnir hafi ekki beðið hana um að sjá myndir af brjóstum eða rassi. „Þetta er svona weird fetish og eitthvað þannig.“

Stelpurnar fengu peninga fyrir myndirnar og nærbuxurnar. „Fyrir nærbuxurnar var þetta alveg þrettán þúsund kall,“ segir Ásdís en þær sögðu að nærbuxurnar væru notaðar þrátt fyrir að þær væru það ekki. Fyrir myndirnar fengu þær á bilinu 3000-5000 krónur sem greiddar voru í gegnum greiðslusmáforritið Aur.

„Það er eitthvað að þeim“

Þegar móðir Ásdísar óskaði eftir því að fá yfirlit yfir færslurnar á reikningi dóttur sinnar sá hún að ekki var allt með felldu. Þegar hún komst að því hvað var á seyði kærðu þær mennina sem höfðu borgað henni til lögreglu, eftir það dró strax úr áreitinu.

Bæði Alexandra og Ásdís óska þess að þær hefu ekki gert þetta. Ásdís segist hafa hugsað um þetta sem auðvelda innkomu en eftir á fattaði hún hvað hafði í raun og veru verið í gangi. „Síðan fattaði ég eftir á að þetta er bara mjög ógeðslegt og heimskulegt og þetta bara endar aldrei eitthvað vel. Þetta gæti alltaf farið lengra ef þeir eru þannig,“ segir hún.

„Þeir spyrja kannski hvar maður býr. Þetta gæti alltaf… af því þessir menn, það er eitthvað að þeim.“

Þáttur Kveiks um stafræna áreitni verður sýndur á RÚV í kvöld klukkan 20:05.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Glerhálka og skortur á hálkuvörnum orsakaði dauða hjóna á Grindavíkurvegi

Glerhálka og skortur á hálkuvörnum orsakaði dauða hjóna á Grindavíkurvegi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögreglan uggandi yfir óhugnanlegum tálbeituaðgerðum hóps íslenskra ungmenna – Ganga hrottalega í skrokk á meintum barnaníðingum

Lögreglan uggandi yfir óhugnanlegum tálbeituaðgerðum hóps íslenskra ungmenna – Ganga hrottalega í skrokk á meintum barnaníðingum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kristinn gagnrýnir hvernig talað er um Palestínumenn – „Smekklegt“

Kristinn gagnrýnir hvernig talað er um Palestínumenn – „Smekklegt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Pirringur“ í garð Pútíns meðal herforingja og elítunnar

„Pirringur“ í garð Pútíns meðal herforingja og elítunnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Illugi furðar sig á Mannanafnanefnd – „Ætti að vera fyrsta sparnaðarleið Kristrúnar Frostadóttur að leggja niður þessa idjótísku nefnd“

Illugi furðar sig á Mannanafnanefnd – „Ætti að vera fyrsta sparnaðarleið Kristrúnar Frostadóttur að leggja niður þessa idjótísku nefnd“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir íslenskt sendiráð hafa valdið sér tjóni

Segir íslenskt sendiráð hafa valdið sér tjóni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ragnheiður skoðaði íbúð á föstudegi en á mánudegi var búið að selja hana – „Og hverjum haldið þið?“

Ragnheiður skoðaði íbúð á föstudegi en á mánudegi var búið að selja hana – „Og hverjum haldið þið?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakaður um vanrækslu á syni sínum – Drengurinn vissi ekki eigin aldur

Sakaður um vanrækslu á syni sínum – Drengurinn vissi ekki eigin aldur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mogginn hnýtir í Höllu forseta – „Kurteisi kostar ekkert“

Mogginn hnýtir í Höllu forseta – „Kurteisi kostar ekkert“