Lenda þurfti flugvél frá Polish Airlines á Keflavíkurflugvelli í gær vegna veikinda farþega. Vélin var á leið frá Chicago til Póllands þegar veikindin komu upp. Farþeginn var fluttur með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurnesjum. Þar segir einnig frá því að bílvelta varð á Reykjanesbraut. Ökumaður missti stjórn á bíl sínum með þeim afleiðingum að hún valt og endaði á toppnum. Ökumaðurinn og farþegi sluppu án verulegra meiðsla.
Þá var ekið á vegrið á Reykjanesbraut og var bíllinn varð óökufær eftir. Ekki urðu slys á fólki.
Í tilkynningunni er greint frá fleiri verkefnum lögreglunnar undanfarið og eru talsverðar annir sagðar hafa verið hjá lögreglu undanfarna þrjá sólarhringa vegna brota og óhappa í umferðinni. Í fyrrakvöld var ökumaður stöðvaður og reyndist hann vera aðeins sextán ára og því réttindalaus. Rætt var við piltinn og honum gerð grein fyrir alvarleika málsins. Einnig var rætt við forráðamann hans.
Afskipti voru svo höfð af allmörgum ökumönnum sem höfðu gerst brotlegir í umferðinni. Nokkrir voru kærðir fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók mældist á 159 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. Hans bíður 230 þúsunda króna sekt.
Lögreglumenn fundu kannabisefni og lyf við leit í íbúðarhúsnæði í umdæminu. Aðili sem var þar staddur játaði eign sína á hvoru tveggja og var tekin af honum vettvangsskýrsla. Hann afsalaði sér efnunum til eyðingar.