ABC News skýrir frá þessu. Fram kemur að það sé Jonathan Karl, fréttamaður hjá stöðinni, hafi skrifað bók sem heitir „Betrayal: The Finaal Act of the Trump Show“ þar sem upplýsingar komi fram um viðbrögð Trump.
Áður hefur komið fram í ýmsum bókum að Trump hafi verið í einkasjónvarpsherbergi sínu og fylgst með atburðunum í beinni útsendingu. Karl segir þetta vera rétt en bætir við að hringt hafi verið í Trump á meðan á árásinni stóð. Það var að sögn Kevin McCarthy, leiðtogi minnihluta Repúblikana í fulltrúadeildinni, sem var á línunni. Hann er sagður hafa beðið Trump um að biðja árásarmennina um að yfirgefa þinghúsið. „Það er nýbúið að flytja mig frá Capitol. Skotum var hleypt af við þak þinghússins. Þú verður að stöðva þetta,“ er hann sagður hafa sagt við Trump.
Heimildarmenn segja að Trump hafi hafnað þessu og sagt: „Þeir eru æstari en þú því þeir trúa meira á þetta en þig Kevin,“ er Trump sagður hafa svarað honum og átti þar við ósannar fullyrðingar hans um að umfangsmikið kosningasvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum.
Í bókinni er því einnig haldið fram að Trump hafi glaðst yfir því sem hann sá á sjónvarpsskjánum og að hann hafi montað sig af hversu margir árásarmennirnir voru.
Það liðu tvær klukkustundir frá því að árásin á þinghúsið hófst þar til Trump sendi frá sér myndband þar sem hann hvatti stuðningsmenn sína til að fara heim og láta af ofbeldinu. Haft er eftir ónafngreindum heimildarmanni að það hafi þurft nokkrar tilraunir til að taka myndbandið upp því í nokkrum útgáfum þess hafi Trump ekki beðið stuðningsmenn sína um að yfirgefa Capitol.