Neytendastofa sektaði í dag fyrirtækið Cromwell Rugs ehf. um þrjár milljónir fyrir villandi auglýsingar, en Cromwell Rugs þóttu ekki hafa fært sönnur á að upprunaleg verð persneskra mottna, sem sögð voru á miklum afslætti, væru réttilega uppgefin.
Maðurinn á bak við Cromwell Rugs er Íraninn Alan Talib og hann ræddi við mbl.is í kvöld um ákvörðun Neytendastofu og kveðst vera í miklu áfalli yfir sektinni.
„Ég er í mjög miklu áfalli og á sama tíma mjög ringlaður,“ sagði Alan. Hann sagðist hafa komið með starfsemi sína til Íslands þar sem hér væri frjáls og opinn markaður og hér hafi hann hitt fyrir frábært fólk.
Hann er ósáttur við vinnubrögð Neytendastofu í málinu og telur að sektin sé sennilega með þeim hærri sem hafi verið ákveðin hér á landi.
„Og fyrir hvað? Fyrir að selja teppi? Fyrir að selja handgerð persnesk teppi á afsláttarverði?“
Hann segir að Neytendastofa hafi gefið honum aðeins einn dag til að færa sönnur á upprunaleg verð teppanna og telur svo skamman frest vera einsdæmi á Íslandi. Hann hafi 25 ára reynslu af sölu teppa og aldrei lent í öðru eins og verði að spyrja sig hvort eitthvað annað en neytendavernd liggi að baki ákvörðun Neytendastofu. Nú upplifi hann sig mjög óvelkominn á Íslandi.