Hún stakk eiginmann sinn, hinn 78 ára David Jackson, tvisvar í brjóstið með eldhúshníf í febrúar síðastliðnum. David tókst við illan leik að hringja í neyðarlínuna en Penelope tók símann af honum og sagði ísköld við neyðarvörðinn: „Ég drap manninn minn eða reyndi það af því að ég hef fengið nóg.“
Neyðarvörðurinn heyrði því næst David öskra þegar Penelope stakk hann í þriðja sinn. „Hvar er maðurinn þinn núna?“ spurði hann Penelope sem svaraði: „Hann er í eldhúsinu, þar sem honum, með smá heppni, blæðir út,“ sagði hún.
Málið var tekið fyrir dóm í Bristol í síðustu viku og að vonum hafa margir breskir fjölmiðlar fjallað um það, þeirra á meðal The Times.
Símtalið til neyðarlínunnar var spilað fyrir dómi og leikur enginn vafi á að um morð af yfirlögðu ráði var að ræða. Þegar neyðarvörðurinn bað Penelope að ná í klút og hjálpa David við að stöðva blæðinguna neitaði hún og sagði: „Ég veit hvað ég gerði. Ég veit að þú vilt að ég hjálpi honum en það vil ég því miður ekki. Ég hef fengið nóg. Kannski fer ég og sting hann í bakið.“
„Ég er alveg sammála um að þetta er hræðileg ákvörðun en þetta er eina leiðin út úr þessu fyrir mig. Ég enda í fangelsi en það er betra en líf mitt núna,“ sagði hún einnig.
Út á við virtust hjónin hamingjusöm og vinir og ættingjar segja að samband þeirra hafi virst eðlilegt. En eitthvað mikið virðist hafa verið að sem þau leyndu fyrir öðrum. Ekki er vitað hvað það var við David sem gerði líf Penelope að martröð eins og hún lýsir en sumir breskir fjölmiðlar hafa skrifað að hann hafi glímt við margvísleg heilsufarsvandamál.