Ástæðan er sá vandi sem er við að etja í birgðaflutningum þessi misserin. Þessi vandi hefur lagst á heimsviðskiptin og skapað flöskuhálsa í flutningageiranum í Bandaríkjunum. heimsfaraldur kórónuveirunnar bætir síðan ekki úr skák.
Þessi vandi getur dregið úr neyslu Bandaríkjamanna og kynt undir verðbólgu. Hann veldur einnig Joe Biden, forseta, pólitískum vanda því samkvæmt niðurstöðum nýjustu skoðanakannanar Reuters/Ipsos eru efnahagsmál mikilvægust í huga kjósenda bæði Demókrataflokksins og Repúblikanaflokksins.
Embættismenn Hvíta hússins hafi síðustu mánuði unnið hörðum höndum að því að leysa vandann varðandi birgðaflutninga en segja að samt sem áður verði neytendur að undirbúa sig undir tómar hillur þegar líður að jólum. Það er þó að sögn ljós í myrkrinu að ástandið verður ekki langvarandi.