Hann lagði í gær til við dómara málsins að málinu verði vísað frá. Áður hafði saksóknari í Las Vegas vísað málinu frá en það var fyrir tveimur árum. Daily Mail skýrir frá þessu.
Það var dómarinn Daniel Albregts sem tók málið fyrir og leggur til við Jennifer Dorsey, sem hafði fengið málinu úthlutað til meðferðar, að því verði vísað frá. Ástæðan er að sögn Albregts að lögmaður Mayroga hafi notað stolin gögn eða gögn sem hafði verið lekið til að styðja mál sitt. Þar á meðal voru samskipti Ronaldo við lögmann sinn en þau áttu að vera leynileg.
Albregts segir að honum þyki slæmt að vísa málinu frá vegna ósæmilegrar hegðunar lögmanns Mayorga en það sé eina færa leiðin til að tryggja réttláta málsmeðferð. Dorsey hefur lokaorðið í málinu og ekki liggur fyrir hvenær hún tekur afstöðu til tillögu Albregts.
Málið hófst þann 12. júní 2009 þegar Mayorga, sem var þá 24 ára, og Ronaldo, sem var 23 ára, voru á diskótekinu Rain í Las Vegas. Hvað gerðist þessa nótt er sveipað nokkurri óvissu og enginn veit það með vissu nema Mayorga og Ronaldo.
Eftir því sem saksóknarar í Las Vegas hafa sagt þá hrindi Mayorga í lögregluna 13. júní og sagðist hafa verið nauðgað. Hún vildi þó ekki segja hver hefði nauðgað henni eða hvar nauðgunin átti sér stað.
Hún sagði síðar að hún hefði verið á diskótekinu ásamt vinkonu sinni þegar þær hittu Ronaldo. Hann hafi síðan boðið þeim upp í svítu sína á hóteli í borginni. Hún segir að Ronaldo hafi síðan nauðgað henni eftir að hún vildi ekki stunda kynlíf með honum. Málið hefur reynst erfitt fyrir lögregluna því bæði 2009 og eftir að Mayorga endurvakti málið 2018 var engar sannanir að finna. Það stóðu aðeins orð á móti orði.
Ronaldo hefur alla tíð vísað því á bug að hafa nauðgað Mayorga en 2010 gerði hann samning við hana og greiddi henni 375.000 dollara gegn því að hún myndi ekki ræða um þessa nótt.