Kisan Fluffy hefur verið týnd í tæpar 10 vikur. Lovísa Sól, eigandi Fluffy, hafði samband við DV og óskaði eftir því að auglýst væri eftir kisunni. „Ég er virkilega örvæntingafull því að kisan mín er búin að vera týnd í meira en 9 vikur og ég er búin að gera allt sem mér dettur í hug til að koma gullinu mínu heim en ekkert virðist virka,“ segir Lovísa en Fluffy týndist þann 30. júlí síðastliðinn.
„Hún á heima í 108 Rvk en sést hefur til hennar á Selfossi, ég á enga ættingja eða leiðir á Selfoss. Ég er búin að hafa samband við allar stofnanir og embætti sem mér dettur í hug, er búin að fara og leita í marga klukkutíma á Selfossi án árangurs. Einnig er ég búin að setja upp auglýsingar út um allt bæði í Reykjavík og á Selfossi.“
Lovísa heitir fundarlaunum en henni líður eins og einhver hafi tekið kisuna hennar. „Ég hef það því miður á tilfinningunni að einhver hafi tekið hana ófrjálsri hendi. Ef þú veist af henni einhversstaðar, eða ert með hana heima hjá þér viltu vinsamlega skila henni eða láta lögreglu vita og það verða engir eftirmálar. Mig langar bara að fá gullið mitt heim,“ segir Lovísa.
„Hún sást seinast hérna heima í Búðagerði í hverfi 108. Hún er örmerkt mér hjá dýraauðkenni en er því miður ekki með merkispjald á sér, einnig er hún í KATTASKRÁIN – The CATalogue og er búið að skrá hana týnda í báðum gagnagrunnum.vSeinast þegar hún sást var hún með brúna flóa ól um hálsinn. Hún er mjög gæf og elskar athygli, kæmi mér ekki á óvart ef hún hefði elt einhvern sem gaf henni athygli. Hún er mjög smágerð (um 2 kg) þrátt fyrir 3 ára aldur, en mjög loðin. Hún er með eitt hvítt eyra, eitt svart, svart skott, með svarta flekki á bakinu og hvítann maga með lambakrullum.“
Lovísa óskar eftir hjálp. „Viljið þið gera mér stóran greiða, deila þessu sem víðast svo að elskan mín finnist sem fyrst og vonandi heil heilsu,“ segir hún. Plís hjálpið mér að koma henni heim, hennar er svo virkilega sárt saknað. Það er hægt að hafa samband við mig í síma 8578136“